157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[19:24]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrri spurninguna og henni er auðsvarað: Nei, það er ekki öryrkja og ellilífeyrisþega að bera ábyrgð á verðbólgunni eða ríkisfjármálunum. Við berum ábyrgð á þeim hér, meiri hlutinn og þá sérstaklega þessir tveir hagfræðingar sem eru í forsvari fyrir ríkisstjórnina, hæstv. forsætisráðherra og fjármálaráðherra, það eru þau sem bera þessa ábyrgð. Hér, eins og í svo mörgum öðrum málum sem voru samþykkt hér síðastliðið haust, er verið að eyða peningum sem við eigum ekki. Hér er verið að lögfesta þessa sjálfstýringu óháð því hvað efnahagurinn og ríkisfjármálin bera. Við eigum ekki efni á þessu. Þetta fer á yfirdráttarreikninginn og við höfum ekki efni á þessu. Það er það sem við óttumst; að þessi aðgerð, til viðbótar við aðrar slæmar aðgerðir meiri hlutans og ríkisstjórnarinnar, muni einmitt auka byrðarnar á þennan hóp, hvort heldur sem það eru ellilífeyrisþegar, öryrkjar eða líka fólk sem er á vinnumarkaði, fólk sem er að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið, greiða af sínum lánum o.s.frv. Því er það mjög skrýtið að ríkisstjórnin, sem var akkúrat kosin út á þetta; að lækka verðbólgu, ná niður vöxtunum, kýla þá niður og hvað var nú sagt, sé í aðgerðum sínum akkúrat að vinna gegn þessu markmiði. Ég skil ekki hvers vegna á því stendur að þetta mál sé til umræðu núna í dag, daginn eftir að forsætisráðherra fór í alla helstu fjölmiðlana og talaði akkúrat í raun og veru gegn aðgerðum eins og þessum, sem er þessi verðtrygging og útgjaldaaukning og að taka áhrif þessarar óheilbrigðu og sjálfbæru launaþróunar og setja þau inn í fimmtung fjárlaganna.