almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir andsvarið. Staðreyndin er sú að það er gert ráð fyrir þessum lögum og þessum breytingum í fjármálaáætlun. Staðreyndin er sú að við eigum fyrir þessu og við gerum ráð fyrir þessu inni í okkar fjármálaáætlunum. Staðreyndin er líka sú að við erum auðvitað að breyta og vinna með nýju kerfi þegar kemur að örorku, endurhæfingarörorku og öðru slíku þannig að við erum auðvitað að vinna að því að styðja fólk enn frekar til virkni en áður. Staðreyndin er líka sú að við viljum auka og munum auka stöðugleikann á vinnumarkaði og við munum halda áfram að vinna að því að lækka verðbólgu og vexti. Það er í sjálfu sér ekkert í þessu frumvarpi sem segir að það sé í hættu. Þessir hagfræðingar sem eru í forsvari ríkisstjórnarinnar styðja þetta frumvarp og hafa gert það alla leið. Það er staðan. Ég held að á margan hátt sé verið að búa til einhverja grýlu úr einhverju sem mun ekki hafa þessi áhrif. Þetta eru líka bara lög, þetta er bara mannanna verk, og það er ekki mikið mál, ef allt fer eins illa og í hæsta stigi lýsingarorða eins og stjórnarandstaðan vill lýsa hér, að reyna að finna út úr því. Mig langaði samt til að spyrja um eitt í viðbót: Það að við tengjum þetta með þessum hætti við launavísitölu — myndi hv. þingmaður meta það með einhverjum hætti að verkalýðsforystan og í raun og veru þessi launaþróun sem er í landinu, heldur hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson að þetta geti haft áhrif á móti til að auka stöðugleikann þar?