almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir prýðisræðu. Það sem mig langaði hins vegar að spyrja aðeins út í eru umræður sem fóru fram í nefndinni, þ.e. út frá umsagnaraðilum og því sem er greint frá í frumvarpinu í 6. kafla, en það er mat á áhrifum. Og hér stendur, með leyfi forseta:
„Þessi breyting kann að fela í sér hækkun þess hluta fjárlaga sem hækkar árlega óháð stöðu ríkissjóðs hverju sinni, enda um að ræða um 15% af fjárlögum ríkisins.“
Ég hefði haldið að þetta væri eitthvað sem við vildum minnka, eitthvað ófyrirséð. Er það rétt skilið hjá mér að ríkisstjórnin, allir flokkar, ég hélt að það væri bara einn flokkur sem vildi halda áfram með svona óábyrga fjármálastjórn, en er það svo að þetta mat á áhrifum sé talið bara ásættanlegt og að fjármálaráðuneytið sé að kvitta upp á þetta og þar með fjármálaráðherra, af því að ég skildi sem svo að hann væri ekki að því? Einnig langar mig að vita hvort hv. þingmaður geti upplýst mig um hvort það sé rétt að það sé búið að gera ráð fyrir þessu í fjármálaáætlun og þá til fimm ára, og er þá verið að gera ráð fyrir þremur til fjórum milljörðum eða hversu hárri upphæð? Er hv. þingmanni kunnugt um það?