157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[20:00]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir prýðisgóða ræðu og hún kom inn á marga áhugaverða punkta. Ég hef verið að skoða frumvarpið sjálft, síðan þessi nefndarálit, og mér finnst nú, ég verð bara einfaldlega að segja það, nefndarálit meiri hlutans vera rýrt. Og mér finnst vanta algjörlega að þar sé tekið á þeim spurningum sem væntanlega hafa komið upp við heimsóknir umsagnaraðila og jafnframt í samtölum og öðru sem var í nefndinni og hvernig gagnrýni hafi verið mætt á ákveðna þætti frumvarpsins eða afleiðingar þess.

En mig langar til að spyrja hv. þingmann, af því að ég sé þess hvergi stað, hvorki í frumvarpinu, nefndarálitinu né í umfjölluninni, hvort komið hafi til skoðunar samanburður á þeim greiðslum sem bótaþegar voru að fá á mánuði þannig að það væri listað upp með þeim hætti að maður sæi þá kannski tekjubil hjá þeim sem þiggja bætur almannatrygginga í samanburði við, ef við horfum t.d. á launþega, þá sem eru í neðri hluta launastigans. Hvort það hafi verið gerður einhver samanburður á því hvernig bótagreiðslum er háttað í samanburði við t.d. lægstu laun.