157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[20:07]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni spurninguna. Ég þori ekki alveg að fullyrða það af því að ég er ekki í velferðarnefnd sem var með málið, en miðað við það sem mér heyrist eftir umræðuna er eiginlega sláandi hvað er lítið af greiningum í svona risastóru máli. Það er örugglega því miður ekki tilviljun. Einhver vill kannski bara flýta þessu í gegn, þetta er einhvers konar samkomulag, og vill láta lítið fyrir því fara, og klárlega held ég að flestir átti sig á að eftir því sem greiningarnar verða meiri þá sést betur hvað málið er ekki gott. Þá ítreka ég, ekki gott fyrir þá sem eru verst staddir, um það snýst það.

Varðandi fyrrverandi hv. þm. Pétur H. Blöndal, þá var þetta mjög áhugavert. Ég man einmitt eftir að ég held að hann hafi sett upp síðu, ég held að það hafi verið vefsíða, hvort það var bara bætur.is, sem var alveg stórkostlegt framtak, þar sem, eins og hv. þm. Ólafur Adolfsson kom inn á, þetta var bara allt mjög skýrt. Það var einmitt svona sundurliðað og það er alveg ótrúlegt að á öllum þessum árum sé þetta ekki til staðar til að líka skattgreiðendur og þeir sem þiggja bæturnar sjái bara hvernig þetta er. Það sem Pétur H. Blöndal sagði einnig, mig minnir að hann hafi verið hlynntur því að skattprósentan væri einföld, bara 15% á alla. Þetta hefur svo sem verið sagt áður, að það kæmu allir betur út, kerfið væri bara einfaldara og allir borguðu minni skatt. Ég held að þetta hafi ekki verið gert víða en ríkisstjórnin sem ætlaði að loka glufum en virðist ansi oft misskilja sjálfa sig þegar kemur að því hvað eru glufur gæti kannski frekar tekið upp margt af því sem Pétur H. Blöndal lagði til.