157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[20:09]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Forseti. Við ræðum hér í 2. umræðu frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, gjarnan kennt við launavísitölu. Þetta er frumvarp frá félags- og húsnæðismálaráðherra og er nú tiltölulega einfalt frumvarp í þeim skilningi að textinn er knappur. Þetta eru í rauninni bara tvær greinar, fyrst að í stað orðsins „launaþróun“ í 2. málsl. 62. gr. laganna komi: þróun launavísitölu, og síðan að þessi lög öðlist gildi 1. janúar 2026.

Þetta frumvarp hefur verið umdeilt, ég ætla að leyfa mér að segja það, allt frá því að það var kynnt. Ég held að það efist enginn um það að mjög margir af þeim sem þiggja bætur almannatrygginga eru ekkert endilega vel settir og jafnvel illa settir og þá skiptir auðvitað miklu máli að við notum þá fjármuni sem við höfum til þess að hjálpa þeim sem helst eru hjálparþurfi. Þegar maður rýnir aðeins í greinargerðina með frumvarpinu þá kemur þar fram að þetta mál eigi sér í rauninni uppruna í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá 21. desember 2024. Þar segir m.a. að ríkisstjórnin muni hækka örorku- og ellilífeyri á hverju ári til samræmis við hækkun launavísitölu en þó aldrei minna en verðlag og síðan er nefnt að frumvarpið taki mið af þessari niðurstöðu. Maður hlýtur hins vegar að velta fyrir sér, í ljósi þess að það er ákveðið að nota launavísitöluna, af hverju menn ákváðu ekki bara strax í upphafi að nýta sér einfaldlega það tækifæri að hækka þetta bara í fjárlögum hvers árs, það er auðvelt að gera ráð fyrir því í fjármálaáætlun, hækka í fjárlögum hvers árs þær bætur sem hér um ræðir og hafa þá fullt forræði yfir því frekar en að binda þær við vísitölu sem getur nú verið kenjótt, svo maður segi það nú bara strax.

Frumvarpið kveður á um beintengingu bóta við þróun launavísitölu í staðinn fyrir að nota launaþróun. Félags- og húsnæðismálaráðherra sem hafði framsögu í þessu máli eða mælti fyrir því hér á þinginu skrifaði einmitt grein um það leyti sem hún var að leggja þetta mál fram og þar kom fram, með leyfi forseta, að gjáin á milli greiðslna almannatrygginga og almennrar launaþróunar væri orðin svo djúp að eldra fólk og öryrkjar væru dæmd til sárafátæktar. Ég held að þetta sé kannski sá grundvöllur sem er lagður fyrir frumvarpinu. Auðvitað er mjög mikilvægt að þeim sem verst hafa það í okkar samfélagi sé lyft og peningarnir séu vel nýttir og ég held að við séum öll sammála um það að þeir sem eru verst settir — þangað viljum við setja fjármunina. Ég held hins vegar að þegar menn fóru að skoða þessa fullyrðingu ráðherrans á sínum tíma þá hafi komið í ljós að þessi hópur hafi kannski ekki verið eins stór og látið var að liggja. Þegar farið var t.d. að skoða hvernig þróun bótakerfisins hafði verið þá kom í ljós að frá aldamótum höfðu bætur almannatrygginga hækkað tvöfalt meira en verðlag og a.m.k. 18% umfram laun.

Í gildandi lögum er kveðið á um að bætur skuli taka mið af launaþróun en þó þannig að bæturnar hækki aldrei minna en verðlag. Það felur nú í sér ákveðið öryggi, það fer alla vega aldrei niður fyrir verðlagshækkanir sem skiptir auðvitað máli en það að taka mið af launaþróun — það eru þá þeir samningar sem eru til staðar á vinnumarkaði og ríkið hefur þá tækifæri, ef ríkið vill, til að gera betur ef því er að skipta, ég fór einmitt yfir það hérna áðan. Það má eiginlega segja að lögin feli nú þegar í sér tvöfalda tryggingu sem augljóst er að launafólk nýtur ekki. En ef við berum aðeins saman hvað það þýðir að tengja bætur í launavísitölu fremur en að tengja við launaþróun, þá dregur það seinna úr hvata til atvinnuþátttöku. Ég held að það sé algjörlega augljóst þar sem bótaþegum verða tryggðar að jafnaði meiri hækkanir en kjarasamningar kveða á um, eins og segir í greinargerðinni. Þetta getur leitt af sér tvöfalda hækkun bóta í þeim tilfellum þar sem verða verðbólguskot þar sem vísitala neysluverðs hækkar verulega og launavísitalan fylgir yfirleitt í kjölfarið. Þetta sáum við m.a. í fjármálahruninu. Það er stórt hlutfall fjárlaga sem mun við þessa aðgerð taka sjálfvirkum breytingum og mun hækka óháð stöðu ríkissjóðs eða efnahagsaðstæðum hverju sinni. Ég er nú ekki viss um að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra Daði Már Kristófersson sé endilega ánægður með þessa niðurstöðu, að hann þurfi að binda um 20% af fjárlögunum við einhvers konar vísitölu sem hann hefur ekki stjórn á.

Útgjaldaaukningin fyrir ríkissjóð á hverju ári er um 4 milljarðar ef frumvarpið verður að lögum. Ef maður les í gegnum umsagnir þá er augljóst að margir vara við auknum verðbólguþrýstingi, ég held að við viljum nú kannski sjá sem minnst af því, þar sem breytingin nær auðvitað til gríðarlega fjölmenns hóps eða um 60.000 manns. Ósjálfbær þróun launavísitölu hefur nú lengi verið sjálfstætt efnahagslegt vandamál á Íslandi og má eiginlega segja að það sé algjört glapræði að beintengja síðan 20% fjárlaga við slíka þróun. Við þekkjum öll höfrungahlaupið sem hefur verið hér á vinnumarkaði og það hefur alla vega sýnt sig að það er skynsamlegt að hætta því höfrungahlaupi. Ég geri þá ráð fyrir því að menn gefist fljótt upp á þessari vísitölutengingu, launavísitölutengingunni. Atvinnuleysisbætur hafa einnig oft tekið sömu hækkunum og bætur almannatrygginga og það hlýtur því eðli máls samkvæmt að leiða af sér að atvinnuleysisbætur muni mögulega hækka hraðar en laun og því gæti komið til þess á einhverjum tímapunkti að atvinnuleysisbætur verði hreinlega hærri en laun í ákveðnum störfum og þá láglaunastörfum. Og þá hlýtur maður eiginlega að spyrja sig, og það var kannski spurningin, ef ég man rétt, sem ég spurði hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra Ingu Sæland þegar hún mælti fyrir þessu máli í fyrsta sinn, þ.e. hvað hún hygðist gera ef niðurstaðan yrði sú að bætur yrðu hærri en laun. Hún hafði reyndar ekki áhyggjur af því á þeim tíma, svo ég vísi nú til hennar svara. En það er augljóst að það er alla vega ekki hvati fólginn í því að vinna ef atvinnuleysisbætur eru hærri en laun.

Það hefur áður komið til umræðu að beintengja bætur við launavísitölu en það hefur aldrei verið talið ráðlegt. Það hefur verið talið skynsamlegra að horfa til kjarasamningsbundinna launahækkana en viðhalda jafnframt einhverju svigrúmi til að meta viðmið um launaþróun sem væri viðeigandi í samhengi við efnahagslega stöðu landsins hverju sinni og heilsu ríkissjóðs. Þess ber að gæta að launavísitalan hækkar alla jafna umfram kjarasamningsbundnar launabreytingar enda inniheldur launavísitalan hækkanir sem tengjast t.d. starfsþróun, bara framgangi í starfi og öðrum einstaklingsbundnum þáttum sem er kannski ekki eðlilegt að reikna inn í bætur almannatrygginga, enda eru þær ekki laun fyrir vinnuframlag. Það þarf að huga að samspili almannatrygginga og atvinnuleysisbóta og þeim hvata sem getur myndast á vinnumarkaði, hvort fólk almennt kjósi að vinna eða ekki, hvort fólk sé að koma aftur inn á vinnumarkaðinn eftir tímabundna örorku o.s.frv. og atvinnuleysisbætur hafi oftast tekið sömu hækkunum og bætur almannatrygginga. Þetta gæti því leitt af sér, eins og ég nefndi hér áðan, að atvinnuleysisbætur hækki hraðar en laun og það verði þá niðurstaðan að bætur verði hærri en laun með tilheyrandi hvata til þess að sinna ekki störfum. Það má draga þá ályktun af þessu að verði frumvarpið að lögum verði dregið úr hvata til atvinnuþátttöku og bótaþegum kannski tryggðar meiri hækkanir en kjarasamningar kveða á um.

Þá spyr maður sig auðvitað í framhaldinu: Er hér ekki bara um að ræða pólitískt sjónarspil? Það er endalaust verið að ræða um kjaragliðnun sem ég vil leyfa mér að segja að gögn styðji ekki endilega að hafi orðið. Þvert á móti hafa bætur almannatrygginga hækkað í rauninni umfram launavísitölu sem þó er bjöguð upp á við, neysluverðsvísitölu frá árinu 1997 eða þegar núgildandi lög tóku gildi. Við vitum það öll hér inni að til þess að geta staðið undir rausnarlegu velferðarkerfi þá þurfum við öflugt atvinnulíf. Hið opinbera á í rauninni að gera allt sitt til að styðja við öfluga verðmætasköpun svo hægt sé að standa undir velferðarkerfi sem er, ja, alla vega hvað markmiðið varðar, að við verðum fremst á heimsmælikvarða og okkur hefur nú tekist býsna vel upp, að mér sýnist, í mörgu.

Þegar maður fer yfir sérstaklega nefndarálitið frá meiri hluta velferðarnefndar þá vil ég leyfa mér að taka undir með þeim þingmönnum hér sem hafa gagnrýnt að nefndarálitið sé fremur rýrt og ég vil segja að maður saknar þess auðvitað að ekki hafi verið vikið að umsögnum þeirra sem t.d. komu fyrir nefndina og gerðu athugasemdir. Ég verð að segja að það hefði auðvitað verið skynsamlegra að nefna þarna og reifa í ákveðnu máli þannig að það skýri afstöðu nefndarinnar til þess af hverju ekki var brugðist við athugasemdum viðkomandi. En því miður er því ekki til að dreifa og því verð ég nú að segja að það eru ákveðin vonbrigði að nefndarálitið sé ekki fyllra en raun ber vitni.

Ég vil þá víkja að nefndaráliti 1. minni hluta velferðarnefndar sem er með frávísunartillögu. 1. minni hluti styður markmið frumvarpsins, þ.e. að vinna gegn fátækt og lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega og ég held að það sé markmið okkar allra sem hér erum inni. Þar er líka vakin athygli á því að bætur almannatrygginga hafa hækkað tvöfalt á við vísitölu neysluverðs og umfram launaþróun á síðustu árum. Ég ætla líka að vekja athygli á því að hér er aftur gerð athugasemd við það að menn skuli ákveða að um 20% útgjalda ríkisins fari á sjálfstýringu og taki mið af þessum útgjaldavexti, alveg óháð því hvernig hagur ríkissjóðs er. Ég ætla að segja að þarna eru menn að reisa sér hreinlega bautastein og ég verð að segja að það kæmi mér á óvart ef fulltrúar Viðreisnar væru sáttir við þessa niðurstöðu. Það verður líka að segjast eins og er að maður saknar aðeins Viðreisnar í umræðunni og ég held að það væri nú rétt af þeim, alla vega einhverjum þingmönnum, að taka til máls í þessari umræðu og skýra afstöðu Viðreisnar til málsins og hvaða kosti og galla þeir telja að séu á þessu frumvarpi.

Af því að nú er farið að síga á seinni hluta ræðu minnar þá langar mig til að víkja aðeins að þeim minnisblöðum sem ég hef séð og eru frá fjármálaráðuneytinu og varða spurningar frá nefndinni um hið ýmsa og sem ég ætla nú reyndar að leyfa mér að segja að framsögumaður málsins hafi skautað að mestu leyti fram hjá, alla vega ekki skýrt með skilmerkilegum hætti af hverju þetta er ekki ávarpað eða á ekki við, t.d. í nefndarálitinu. Vil ég hér nefna t.d. spurningu sem beint er til ráðuneytisins, með leyfi forseta: „Telur ráðuneytið frumvarpið samræmast grunngildum laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, um sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi?“ Ráðuneytið vekur athygli á því að greiðslur almannatrygginga tengdar við launavísitölu geti leitt til sjálfvirkrar aukningar útgjalda óháð stöðu ríkisfjármála. Það myndi óhjákvæmilega draga úr möguleikum stjórnvalda til að forgangsraða fjármunum til annarra verkefna og gæti í rauninni stangast á við markmið um sjálfbærni ríkissjóðs til lengri tíma þar sem framtíðarútgjöld aukast sjálfkrafa án þess að tekjur fylgi eftir eða mat fari fram á heildaráhrifum.

Ég spyr mig aðeins hvað varðar fyrirkomulag stjórnarsáttmálans, hvernig menn ætla að efna þau loforð sem eru í stjórnarsáttmálanum og hvernig þau skiptast á milli flokka. Nú höfum við horft upp á hvert málið á fætur öðru fara hér í gegn sem getur, ég ætla að leyfa mér að segja það, leitt til aukinnar verðbólgu eða er olía á eld verðbólgunnar. Maður hefði haldið að svona sjálfvirkir útgjaldaliðir væru nú ekki til þess fallnir að slökkva þá elda. Hefði ekki verið skynsamlegra, bara út frá einfaldri væntingastjórnun, að menn myndu ráðast í þessi verkefni síðar á kjörtímabilinu þannig að við hefðum í rauninni getað náð tökum á verðbólgunni, náð að lækka vextina og í framhaldi af því hugað að útgjaldaverkefnunum? Ég er alveg sannfærður um að það hefði verið skynsamlegra fyrir ríkisstjórnina, ekki síst í ljósi þess að hún var mjög vinsæl þegar hún tók við. Ég er dálítið hissa á því að væntingastjórnunin hafi ekki verið með aðeins öðrum hætti. Það var talað um verkstjórn o.s.frv. en verkstjórnin hefði auðvitað átt að einblína á það að ná hallalausum fjárlögum, og það var klárlega tækifæri til þess á árinu 2025, og vera í rauninni í væntingastjórnun gagnvart þjóðinni með það hvernig væri hægt að ná tökum á verðbólgunni og hvað þyrfti til. Ég held að allir hafi verið tilbúnir til þess að færa fórnir í þeim efnum. Og ég kannski leyfi mér bara að segja sem er bara mitt einlæga ráð til ríkisstjórnarinnar: Snúum af þessari braut sem við höfum verið á og förum af fyllstu alvöru í það að tempra útgjöld ríkisins eins og nokkur kostur er. Það felur m.a. í sér að velja útgjaldaliðina vel og vanda sig við þau útgjöld sem fyrirsjáanleg eru. Það hefði t.d. verið hægt að einblína hér í þessu máli á þann hóp innan bótaþega (Forseti hringir.) sem hefur það hvað verst. Það hefði t.d. verið góð byrjun.