almannatryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir ekki bara prýðisræðu heldur einnig góða yfirferð yfir af hverju við ættum ekki að samþykkja þetta mál. Það er svo mörgum spurningum ósvarað. Það sem við vitum hins vegar í málinu er að þetta fer gegn markmiðum um að ná hér niður verðbólgu og þar með vöxtum. Það liggur fyrir að þetta er enn eitt málið frá ríkisstjórninni til að kynda undir verðbólgunni. Maður skilur þetta bara ekki. Ég skil ekki að við séum að ræða þetta hér eftir öll frumvörpin sem hafa komið frá þessari ríkisstjórn þar sem markmiðin eru sögð voða góð og fín. En hvað? Þetta liggur fyrir í öllum umsögnum og greiningum sem hafa verið gerðar, ekki af ríkisstjórninni og ráðuneytunum, heldur af atvinnulífinu og fólki sem er að leggja mikla vinnu og tíma í að benda okkur á afleiðingarnar. Það er ekki þannig að þessar ábendingar séu þess eðlis að þær séu hraktar, að þær séu rangar, heldur er þeim bara ekki svarað. Það er enginn að koma hér að þingsalnum og segja: Heyrðu, þetta er allt í lagi af því að … Nei, það erum bara við, hv. þingmenn. Þannig að spurning mín til hv. þm. Ólafs Adolfssonar er einfaldlega sú, eftir það sem hann fór yfir áðan og við höfum rætt: Af hverju telur hv. þingmaður að það sé ekki tekið mark á og hlustað á umsagnaraðila og ég tala nú ekki um á degi eins og í dag þegar við erum búin að fá svona verðbólgutölur eins og í gær og hér er komið annað frumvarp sem ýtir enn meira undir verðbólguna? Af hverju er ekki hlustað?