almannatryggingar.
Frú forseti. Ég þakka fyrir. Ég ætlaði að grípa boltann þar sem hv. þingmaður skildi hann eftir. Ég man nú ekki alveg orðalagið en það var um hvert við setjum peningana. Það minnti mig á umræðuna hér í þingsal þar sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, Daði Már Kristófersson, fór yfir það að það sem þeir ætluðu að skera niður yrði ekki flatur niðurskurður heldur ætluðu þeir að velja vel. Hann sagði reyndar líka að þeir ætluðu ekki að fara í flatan niðurskurð eins og við værum að leggja til, en það var bara enginn að leggja það til. Það hefur væntanlega einhver innan ríkisstjórnarinnar talað um það. Við heyrum það nú ítrekað. Hann sagði reyndar líka að það þyrfti að draga úr útgjöldum en ekki auka þau eins og við lögðum til. Það hefur enginn lagt til að auka útgjöld og ekki einu sinni fólkið í landinu sem kaus ríkisstjórnina. Það vildi draga úr útgjöldum. Þetta er alveg einsdæmi, að ríkisstjórn sé hér við völd sem er með umboð til að draga úr útgjöldum. Þau voru augljóslega kosin út á það, það var vilji til þess, en þau eru að fara í aðra átt. Út frá þessu velti ég fyrir mér því sem hv. þingmaður segir um að stýra betur hvert fjármunirnir fara. Nú þekkir hv. þingmaður til t.d. í lyfjum. Kannski mætti stýra því betur og það myndi nýtast fólki betur að fá meiri afslátt þar, ég veit ekki. Hjálpartæki, hverjir þyrftu mest á því að halda. En aðallega, eins og hv. þingmaður sagði, get ég tekið undir að það þarf að hafa réttu hvatana. Það eiga ekki að vera hvatar til að hætta að vinna heldur hvatar til að t.d. að skerðast ekki ef þú ert byrjaður að vinna aðeins. Og svo vitum við að það er hópur sem getur alls ekki unnið, sama hvað, og það er hópur sem er bara samstaða alls staðar um, held ég, að hjálpa eins mikið og við getum.
Því spyr ég hv. þingmann: Ef samstaðan er svo mikil, af hverju þurfum við að leggja fram frumvarp sem er meingallað?