almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Hér eru u.þ.b. 20% af fjárlögunum undir. Það er því fullkomlega eðlilegt, og skrýtið ef það verður ekki gert, að farið verði fram á álit hv. fjárlaganefndar. Við erum að tala um 20% af fjárlögunum, ekki 2% og ekki 12% heldur 20%. Ég geri ráð fyrir að við í fjárlaganefnd, alla vega ef vinnubrögðin verða eins og þau eiga að vera, köllum til sérfróða aðila og fáum álit á því hvaða áhrif það hefði á fjárlagavinnuna ef þetta væru lög o.s.frv. En það sem mun gerast er að þetta verður sjálfvirkt. Nú er það þannig að menn hafa gert allt — þess vegna voru t.d. markaðar tekjur teknar; markaðar tekjur eru þannig að það voru bara ákveðnir tekjustofnar sem skiluðu ákveðnum upphæðum og þá fór það sjálfkrafa í ákveðin útgjöld. Menn sögðu: Heyrðu, þetta er óskynsamlegt og í raun ólýðræðislegt. Aðstæður geta breyst og það sem menn vildu setja fjármuni í áður getur pólitíkin viljað setja í eitthvað annað og þess vegna var það tekið út. Hér er í raun verið að fara öfuga leið. Ég veit ekki hvort markaðar tekjur eru alveg rétti samanburðurinn en það er verið að setja sjálfstýringu á útgjöld, alveg sama hvernig aðstæður í þjóðfélaginu eru, hvort sem það er bankahrun, Reykjaneseldar, góðæri eða hvað það er.
Áhyggjur mínar eru þessar og ég hélt að hv. þingmaður ætlaði að vísa til þess. Þessi ríkisstjórn byrjaði á því að brjóta lög um opinber fjármál. Það er stórmál og það mun hafa og hefur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Auðvitað getur einhver sagt: Þetta er svo tæknilegt að það skilur það enginn og við komumst upp með það pólitískt. En það er stóralvarlegt þegar þannig er farið með opinber fjármál að lög séu brotin. Það er það sem hæstv. ríkisstjórn hefur farið í. En stutta svarið er þetta: Það er fullkomlega eðlilegt, þótt um væri að ræða minna en 20% af útgjöldunum, að fá álit hv. fjárlaganefndar á frumvarpinu.