almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Hér erum við að ræða um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar. Þetta er óábyrgt mál, virðulegur forseti. Þetta er óábyrgt mál á svo marga vegu að það er svona spurning hvar eigi að byrja. Það vekur athygli að í þessu máli, sem og reyndar í mörgum öðrum málum sem koma frá hv. ríkisstjórn þessa dagana, sameinast verkalýðsforystan og Samtök atvinnurekenda í andstöðu sinni við málið. Þeim til liðsinnis og liðsauka eru hæstv. fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytið, sem eru ekki einhver samtök úti í bæ heldur eru hluti af hæstv. ríkisstjórn. Alþýðusambandið leggst gegn málinu en samt sem áður er því lýst hér yfir að þetta mál eigi að klára sama hvað — sama hvað.
Það er sorglegt til þess að hugsa að þetta séu vinnubrögðin, virðulegur forseti. Ég hélt að hæstv. ríkisstjórn væri kannski búin að læra að hlusta á varnaðarorð, og tala nú ekki um sameiginleg varnaðarorð frá Samtökum atvinnulífsins og verkalýðsforystunni, þegar varað er við einhverri vegferð. En nei, það var gert lítið úr því að hér myndi verðbólgan hækka, og verðbólgan er 5,2%. Þrátt fyrir varnaðarorð og umsagnir sem allar bar að sama brunni — nei. Það sem er þó skemmtilegast við þetta mál er að nú eru þetta ekki bara samtök úti í bæ heldur er það líka hæstv. fjármálaráðherra sem virðist hafa séð ljósið í því að þetta sé óábyrgt mál. Þetta er mál sem er líklegt til að hækka verðbólguna í landinu, og hverjir fara nú verst út úr því þegar verðbólgan í landinu hækkar? Jú, það eru landsmenn. Það eru fjölskyldurnar í landinu, það eru heimilin í landinu. Hefur það einhver áhrif á Flokk fólksins? Nei. Hefur það orðið hvati til þess fyrir hæstv. samstarfsflokka Flokks fólksins í ríkisstjórn að koma hér upp og segja: Heyrðu, nú skulum við aðeins að hinkra við? Nei, það hefur ekki verið það. Þetta er í rauninni bara pólitískt, það kristallast svo vel þessi pólitíski munur á vinstri og hægri. Hér eru vinstri menn að færa enn meiri pening frá hinum vinnandi stéttum þessa lands, sem eru skattgreiðendur, inn í bótakerfið og færa enn þá þyngri byrðar á fjölskyldurnar í landinu, á vinnandi fólk, skattgreiðendur, og færa inn í bótakerfið.
Í þessu kerfi eru um 30.000 manns í dag, virðulegur forseti, 30.000 manns. Einhver hefði nú haldið að hæstv. ríkisstjórn væri þegar búin að þyngja róðurinn nóg fyrir fjölskyldur landsins. En nei, nú á að bæta um betur. Hjá hæstv. ríkisstjórn virðist alltaf vera nóg til og meira frammi þegar kemur að því að eyða almannafé. Svo er það bara tekið að láni eða skattarnir hækkaðir. Þessi hópur sem nú er verið að færa enn þá meiri peninga til á að vera með belti og axlabönd í þessu máli af því að, eins og kemur fram í frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Í frumvarpi þessu er lagt til að ákvörðun um árlegar breytingar á greiðslum almannatrygginga skuli taka mið af þróun launavísitölu, sbr. lög um launavísitölu, í stað launaþróunar líkt og kveðið er á um í gildandi lögum. Áfram er þó miðað við að greiðslurnar hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs líkt og kveðið er á um í gildandi lögum.
Þannig að ef neysluvísitalan er hærri þá gildir hún, það er bara sú vísitala sem er hærri sem gildir. En horfum á hvernig launavísitalan er, af því að við sáum nú bara sundurliðun á dögunum á því hvernig launavísitalan er mismunandi milli hópa og að það geta verið ákveðnir hópar sem keyra meira upp launavísitöluna en aðrir, þannig að launavísitala getur tekið kipp út frá breytingum, snöggum breytingum, hjá ákveðnum hópum. Kennarar t.d. voru að fá 25% launahækkun á síðastliðnu ári. Það er langt umfram það sem almenni markaðurinn samdi um og það eru búnar að vera hærri launahækkanir í opinbera geiranum en á almenna markaðnum. Þetta hefur allt áhrif á launavísitöluna. Þetta hefur áhrif á það að launavísitalan endurspeglar kannski ekki hvernig lægstu laun eru að þróast samanborið við bætur. Og hvað ef það kemur verðbólguskot? Ja, hinn almenni launamaður situr uppi með þann súra kaleik ef það kemur verðbólguskot að lánin hans hækka og allt hækkar, en hér er tryggt að þá fylgja bæturnar verðbólgunni.
Í mínum huga, virðulegur forseti, er hér verið að semja um réttindi sem eru umfram það sem gerist á almennum launamarkaði og vinnumarkaði og við megum ekki gleyma því að það er almenni markaðurinn, það eru skattgreiðendur þessa lands sem borga fyrir allt þetta sem hæstv. ríkisstjórn er að fara út í. Og ég spyr, eins og margir hv. þingmenn hafa spurt: Hvar eru þingmenn Viðreisnar í þessu máli? Hvar eru þeir? Ég horfi hér á einn hv. þingmann þannig að ég vil taka það fram að ég sé að hér er einn hv. þingmaður, Grímur Grímsson, að fylgjast með umræðunum og það er gott. En það er einhvern veginn tilfinning mín að hv. þingmenn Viðreisnar vilji alltaf kannast minna og minna við það að vera hluti af þessari ríkisstjórn miðað við þau mál sem er verið að taka upp, allar þær skattahækkanir sem er búið að boða og leggja hér á landslýð. Nú er það þetta mál, að tengja bætur við launavísitölu, sem Flokkur fólksins kemur með. Síðan er það strandveiðifrumvarpið. Það er þessi delluvegferð í grásleppunni og allt er þetta eitthvað sem hv. þingmenn Viðreisnar ætla greinilega að láta yfir sig ganga gegn betri vitund til þess að ja, halda líminu hér á bekknum fyrir aftan mig og tryggja stuðninginn fyrir því að það verði farið hér í atkvæðagreiðslu um inngöngu í Evrópusambandið.
Ég segi þetta, virðulegur forseti, af því að ég sé bara ekkert orðið af öðrum málum Viðreisnar hér eftir í ríkisstjórninni. Hér er aðallega verið að keyra á einhver dellumál Flokks fólksins, grásleppufrumvarp og strandveiðifrumvarp, sem eru einhverjir draugar fortíðar frá Frjálslynda flokknum, sem náttúrulega stór hluti af Flokki fólksins kemur úr, Frjálslynda flokknum heitnum, og nú er búið að heimfæra þetta hér upp á að verða stefna hæstv. ríkisstjórnar. Það var nú einhver ástæða fyrir því að sá flokkur lognaðist út af, en nei, hans helstu baráttumál hafa dúkkað hér upp hjá hæstv. ríkisstjórn. Það er athyglisvert að sjá að það eru eiginlega engin mál orðin eftir sem eru svona stefnumál og hjartans mál Viðreisnar, nema eitt, í þessari ríkisstjórn. Það er búið að gefa eftir að hækka ekki skatta á venjulegt fólk, það er búið að gefa það eftir, eða á óvenjulegt fólk eða á atvinnulífið í landinu, kílómetragjöld og hvað þetta heitir, samsköttun hjóna o.s.frv. o.s.frv.
Það er nú bara þannig, virðulegur forseti, að hér er verið að eyða peningum sem eru ekki til. Þetta er eitthvað algjört skot í myrkri, kostnaðarmatið á þessum áhrifum, og það kæmi mér ekkert á óvart þó að árlegur kostnaður við þessa aðgerð yrði 5–7 milljarðar á ári. Það eru kannski 20–28 milljarðar á kjörtímabilinu. Ég vil bara minna á að hér var blásið í lúðra, reyndar voru ekki ræstar neinar vélar af því að þær voru ræstar á blaðamannafundi um samgönguáætlun, en það er nú ekki til umræðu hér, en það var blásið í lúðra og samfélagsmiðlar fóru á hliðina þegar hæstv. ríkisstjórn tilkynnti að hún væri búin að finna 3 milljarða, sem eru náttúrulega borgaðir af skattgreiðendum, til þess að fara í stóraukið átak í vegamálum í sumar. 3 milljarðar og hér er hæstv. ríkisstjórn ábyggilega að fara að eyða 25–30 milljörðum á kjörtímabilinu í þetta mál Flokks fólksins sem er svo óábyrgt. Verkalýðsforystan, Samtök atvinnulífsins, hæstv. fjármálaráðherra og ráðuneyti hans hafa öll varað við þessu. Það er í rauninni alveg ótrúlegt að horfa upp á það að hæstv. fjármálaráðherra sé að vara við málinu og fjármálaráðuneytið en samt á að keyra þetta í gegn, sama hvað.
Þetta verður alltaf súrrealískara og súrrealískara, framgangur mála hér í þinginu, og þetta er bara enn eitt dæmið um að tiltektin svokallaða, planið og hagræðingin og hagræðingartillögurnar verða alltaf hlægilegri og hlægilegri með hverjum deginum, virðulegur forseti. Það er nefnilega þannig að það er ekki nóg til og meira frammi hjá skattgreiðendum þessa lands og vasar skattgreiðenda eru ekki endalaust djúpir. Og ef það á að taka lán fyrir þessu eru það bara framtíðarkynslóðir sem munu borga fyrir þessa vegferð. Það mun ekki skrifast á Flokk fólksins. Það mun skrifast á samstarfsflokkana, á flokk hæstv. fjármálaráðherra og flokk hæstv. forsætisráðherra að hleypa þessu í gegn. En þetta er allt að teiknast upp. Það er ekki eins og þetta sé eitthvað plott hér í einhverjum reykfylltum bakherbergjum sem enginn sér. Það er bara greinilegt að það er grásleppan, það eru strandveiðarnar og það er launatengingin sem þarf að keyra í gegn til þess að hæstv. forsætisráðherra geti haldið ríkisstjórninni saman og hæstv. utanríkisráðherra geti fengið sitt hjartans mál, um að reyna að koma þjóðinni í Evrópusambandið, í gegn.
Virðulegur forseti. Þetta mál má ekki fara hér í gegn óbreytt og það er ábyrgðarhluti samstarfsflokka Flokks fólksins að láta þetta fara í gegn. Ég spyr, virðulegur forseti: Hvenær er nóg nóg fyrir hv. þingmenn Viðreisnar, sem ég veit að hugsa sitt, hvort sem það er í þessu máli eða öðrum málum sem eru jafnvel gömul hugðarefni fyrrverandi þingmanna Frjálslynda flokksins og núverandi þingmanna Flokks fólksins? Einhver dellustefnumál frá 1980 og eitthvað eða 1990 og eitthvað að poppa hér upp aftur eins og draugur fortíðar og þetta er bara látið fara hér í gegnum þingið, allt til þess að halda þessu saman. Ég spyr hvenær, hv. þingmenn Viðreisnar? Ég geri minni kröfur og hef minni væntingar til hv. þingmanna Samfylkingarinnar sem eru þó bara hreinir vinstri menn og finnst allt í lagi að taka meira fé af vinnandi fólki og færa það í einhver bótakerfi og önnur kerfi og eyða annarra manna fé. Það er það sem þeim hefur alltaf tekist best upp með. En hvenær ætla hv. þingmenn Viðreisnar, sem a.m.k. töluðu hér fyrir kosningar um að vera á móti skattahækkunum, að sýna ábyrgð? Hér er engin ábyrgð. Það er ábyrgðarhluti að láta svona mál fara í gegn. Það er ábyrgðarhluti að hleypa málum eins og grásleppunni í gegn sem brýtur gegn sjálfbærnimarkmiðum um ábyrgar veiðar og annað. Þegar forstjóri vísindastofnunar segir af sér af því hann treystir sér ekki til að styðja svona vegferðir — vísindamenn eru að segja af sér af því að þeir eru ekki tilbúnir til að styðja svona delluvegferðir. Hvenær er nóg nóg? Hvenær munu þingmenn Viðreisnar segja: Það er ekki öllu til fórnandi? Sómakennd og hugmyndafræði hv. þingmanna Viðreisnar hlýtur að eiga sér einhver takmörk og ég velti því fyrir mér hvenær hv. þingmenn, ég hef minni vonir til hæstv. ráðherra enda er ráðherrasessan hlý, ætli að segja hingað og ekki lengra. Hér er fullkomlega óábyrgt mál og þeirra hæstv. ráðherra eru á móti málinu en samt sem áður á að keyra það hér í gegn. Ég bara skil það ekki. Hér er verið að keyra málið í gegn sem mun kosta á kjörtímabilinu 25–30 milljarða. Svo tölum við um að við höfum ekki efni á göngum eða vegum. Það er af því að það er verið að eyða peningunum í svona vegferðir. Það fer bara ekkert saman hljóð og mynd. Hér er engin tiltekt á ferðinni. Er þetta hluti af hagræðingartillögunum? Nei, síður en svo. Þetta er enn ein eyðslutillagan. Og hvað svo, „den tid, den sorg“? Verða svo bara einhverjir aðrir sem eiga að borga reikninginn einhvern tímann?
Virðulegur forseti. Þetta er vont mál. Þetta er óábyrgt mál og ég hvet hv. þingmenn Viðreisnar, af því að hv. þingmenn Samfylkingarinnar eru þó bara vinstri menn og vilja bara millifæra, eyða annarra manna fé og millifæra peninga frá vinnandi fólki eitthvað annað, en ég trúi því að hv. þingmenn Viðreisnar muni á einhverjum tímapunkti spyrna hér við fótum.