157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[21:57]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp um breytingu á lögum um almannatryggingar sem snertir stóran hóp landsmanna en ekki síst ríkisfjármálin. Þetta er eitt af þessum málum sem kalla bæði á höfuð og hjarta. Hjarta vegna þess að það fjallar um afkomu fólks sem reiðir sig á almannatryggingar. Höfuð vegna þess að það fjallar um reglu sem á að gilda til allrar framtíðar og getur haft víðtæk áhrif á verðbólgu, vexti, hvata á vinnumarkaði og sjálfbærni opinberra fjármála.

Ég vil byrja á því að segja skýrt að við Sjálfstæðismenn stöndum með því markmiði að tryggja að fólk sem getur ekki treyst á launatekjur hafi örugga og mannsæmandi framfærslu. Við eigum að vernda kjör eldri borgara og öryrkja og fólks með skerta starfsgetu. Um það held ég að gildi víðtæk sátt hér á landi en einmitt þess vegna verðum við að gera rétt.

Í frumvarpinu eru atriði sem ég tel nokkuð jákvæð. T.d. tel ég að það sé góð og þörf breyting að aldursviðbót öryrkja falli ekki niður þegar fólk fer yfir á ellilífeyri. Þá er líka mikilvægt að bæta gagnasöfnun og yfirsýn um endurhæfingarþjónustu og tengd úrræði svo að stefnumótun og ákvarðanataka byggist á staðreyndum.

Það sem skiptir þó mestu í þessu frumvarpi og það sem við ræðum í raun hér í dag er tillagan um að tengja hækkanir bóta almannatrygginga beint við launavísitölu Hagstofu Íslands í stað þess sem lögin tala um í dag, launaþróun með þeirri tryggingu að hækkanir verði aldrei lægri en verðlagsþróun samkvæmt vísitölu neysluverðs.

Í gildandi lögum er þegar til staðar tvöföld vernd. Bæturnar eiga að taka mið af launaþróun en þær mega aldrei hækka minna en verðlag. Þessi tvítrygging er í sjálfu sér sterk og hún er sterkari en margt launafólk býr við þar sem laun hækka ekki sjálfkrafa með verðlagi.

Þá skiptir líka máli að greina milli launaþróunar og launavísitölu. Fyrir marga hljómar þetta nánast sem sama hugtak en það er ekki þannig. Launavísitala endurspeglar ekki bara kjarasamningsbundnar hækkanir, hún nær einnig utan um launaskrið, starfsaldurshækkanir, breytingar í starfshlutföllum og ýmsa þætti sem eru eðlilegir innan launakerfa en eru ekki endilega eðlilegur grunnur til að hækka bætur almannatrygginga sjálfvirkt ár eftir ár. Þetta er kjarni málsins, virðulegi forseti.

Ég vil draga fram að hér er rík ástæða til varfærni. Launavísitalan hefur mögulega lengi verið sjálfstætt efnahagslegt vandamál á Íslandi og það er glapræði að tengja stóran hluta fjárlaga beint við slíka þróun. Benda má á að hér eru um 20% af fjárlögum undir og að útgjaldaaukning ríkissjóðs gæti verið um 4–5 milljarðar á ári.

Við getum ekki nálgast þetta bara á þeim forsendum að þetta sé réttlætismál. Þetta verður nefnilega að ganga upp í raunveruleikanum. Hækkun bóta til stórs hóps sem nefndur er um 60.000 manns mun óhjákvæmilega hafa áhrif á hagkerfið. Minni neyslugeta er vandamál en hraðari og sjálfvirkari hækkun útgjalda getur líka aukið verðbólguþrýsting sem bitnar einmitt harðast á tekjulægstu hópum; eldri borgurum og öryrkjum. Verðbólgan er skattur sem enginn greiðir af fúsum og frjálsum vilja en sumir greiða hann tvöfalt.

Samtök atvinnulífsins vara við því að núverandi fyrirkomulag, sem hefur jafnan horft til kjarasamningsbundinna breytinga þegar launaþróunin er metin, sé betur til þess fallið að styðja við verðbólgumarkmið og sjálfbæran rekstur ríkissjóðs en beintenging við launavísitölu. Viðskiptaráð leggst einnig gegn breytingunni og segir hana þyngja byrðar vinnandi fólks, hraða varanlega útgjaldavexti hins opinbera og veikja hvata til þátttöku á vinnumarkaði. Þarna snertum við annan þátt sem skiptir máli. Það eru hvatarnir sem þarna búa að baki. Í greinargerð frumvarpsins er beinlínis sagt að breytingin muni að jafnaði tryggja meiri hækkanir en kjarasamningar kveða á um. Það er sett fram sem kostur en það er að sjálfsögðu líka rautt flagg. Þegar bótakerfi er hannað þannig að það hækki að jafnaði hraðar en laun sem standa undir kerfinu þá skapast til lengdar misvægi sem dregur úr verðmætasköpun og þar með getu samfélagsins til að fjármagna velferðina.

Þetta er ekki siðferðisdómur um fólk sem fær bætur eða okkar minnstu bræður og systur, en munum að sterkt velferðarkerfi þarf sterkt atvinnulíf og hvatar skipta máli, ekki bara fyrir einstaklinga heldur einnig fyrir heildina. Atvinnuleysisbætur hafa oftast fylgt sömu hækkunum og bætur almannatrygginga. Ef við festum þessa sjálfvirkni í lög og hún leiðir til hraðari hækkana en laun þá getur það skapað aðstæður þar sem atvinnuleysisbætur færast nær lægstu launum og í verstu tilvikum geta bætur orðið hærri en laun í tilteknum störfum. Þá erum við komin á stað þar sem kerfið óviljandi ýtir fólki frá vinnu í stað þess að hvetja og styðja fólk til þátttöku á vinnumarkaðnum.

Svo er þriðji þátturinn sem við verðum að ræða af alvöru. Það er sjálfvirkni í niðursveiflu. Launavísitala getur hreyfst á hátt sem er ekki alltaf í takt við stöðu ríkissjóðs eða efnahagsaðstæður hverju sinni. Ég vil vara við því að með slíkri tengingu getur aukist sjálfvirk útgjaldaþensla, óháð stöðu ríkisfjármála, og þetta getur dregið úr getu stjórnvalda til að bregðast við efnahagssveiflum og forgangsraða í ríkisrekstrinum.

Annað sem skiptir máli er að ef við fáum verðbólguskot þá hækkar vísitala neysluverðs fyrst og svo fylgir launavísitalan oft í kjölfarið. Ef kerfið er hannað þannig að bætur hækki aldrei minna en verðlag og svo ofan á það tengist launavísitölu getur komið til þess að kerfið gefi tvöföld áhrif í slíkum aðstæðum. Það er hættulegt ef við viljum stöðugleika. Vandinn sem sumir lýsa er að reglurnar hafa verið of óljósar og of háðar mati. Þá er lausnin að skýra reglurnar, ekki að festast í kerfi sem magnar upp veikleika íslensks vinnumarkaðar og gerir stóran hluta ríkisfjármála háðan vísitölu sem hefur sögulega hækkað umfram það sem samræmist verðstöðugleika. Þess vegna legg ég áherslu á eftirfarandi:

Í fyrsta lagi: Við þurfum að viðurkenna að gildandi kerfi hefur tvítryggingu. Það er ekki rétt að hér sé engin vernd. Bent hefur verið á að frá aldamótum hafi bætur almannatrygginga hækkað tvöfalt meira en verðlag og um 18% umfram laun. Ef það er raunin þá þarf umræðan að byggjast á gögnum, ekki tilfinningum eða slagorðum.

Í öðru lagi: Ef vandinn er að spár hafi vanmetið þróun og þar með hafi fólk setið eftir þá eigum við að setja inn skýra lausn sem leiðréttir það. Ef rauntölur verða aðrar en spár á mismunur að leiðréttast sjálfvirkt. Það er sanngirni, það er líka gagnsæi og það nær markmiðinu sem stuðningsaðilar frumvarpsins sækjast eftir án þess að búa til nýja kerfishættu líkt og sú lausn sem hér er lögð fyrir.

Í þriðja lagi: Við eigum að halda okkur við viðmið sem tengjast kjarasamningsbundnum hækkunum, ekki launaskriði og öðrum þáttum sem launavísitalan fangar. Það er einmitt það sem Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð benda á, að slíkt sé betur til þess fallið að styðja við verðbólgumarkmið og sjálfbærni.

Í fjórða lagi: Við verðum að skoða þetta í samhengi við aðrar kerfisbreytingar, sérstaklega breytingar sem miða að aukinni atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu. Í umsögnum er bent á að það sé ósamræmi að setja sjálfvirka tengingu sem getur dregið úr hvata til vinnu á sama tíma og markmiðið í öðrum stórum breytingum er að styrkja hvata til vinnu.

Í fimmta lagi: Við verðum að gera fullnægjandi áhrifamat, ekki bara á þá sem fá bætur heldur líka á aðra hópa sem verða fyrir afleiddum áhrifum. Í umsögn er sérstaklega bent á að áhrif á börn og meðlagsgreiðendur hafi ekki verið metin og það sé ófaglegt að leggja fram frumvarp án fullnægjandi greiningar. Þessi ábending á erindi, sama hvar fólk stendur í pólitík.

Virðulegi forseti. Ég hef hér talað um áhættu en ég vil líka tala um ábyrgð. Ábyrgð í velferðarmálum er að tryggja fólki öryggi. Ábyrgð í efnahagsmálum er að tryggja að kerfin okkar kyndi ekki undir verðbólgu, vexti og óstöðugleika. Ábyrgð í stjórnsýslu er að byggja á gögnum og greiningu. Ábyrgð í pólitík er að segja sannleikann um það sem frumvörp gera, ekki bara um tilgang þeirra og markmið. Þegar frumvarp er sett fram sem stórt réttlætismál verður það að standast nánari skoðun. Það þarf að vera ljóst hvers vegna gildandi regla dugir ekki, hvaða gögn styðja að bil hafi myndast og hvers vegna valin er þessi leið en ekki önnur. Ríkisstjórnin hefur fullyrt að kjaragliðnun sé til staðar en djúp gjá milli bóta og launa stenst ekki nánari athugun. Það er umhugsunarefni sem Alþingi má ekki og getur ekki hunsað. Ég legg því til að við vinnum þetta mál þannig í nefnd að við náum tveimur markmiðum samtímis, annars vegar að bæta stöðu fólks sem reiðir sig á almannatryggingar, sérstaklega þeirra sem eru tekjulægstir, með markvissum aðgerðum sem skila raunverulegum árangri, og hins vegar að forðast að festa í lög sjálfvirka reglu sem eykur útgjöld óháð efnahagsaðstæðum, getur aukið verðbólguþrýsting, veikir hvata til atvinnuþátttöku og magnar upp þann vanda sem launavísitalan hefur þegar skapað í íslensku hagkerfi.

Þetta er ekki afstaða gegn fólkinu. Þetta er afstaða með fólkinu. Það er líka afstaða með framtíðinni. Ég vil að Alþingi sýni hér þá yfirvegun sem fólkið í landinu krefst af okkur. Fólk vill að við hjálpum en fólk vill líka að við hugsum, fólk vill að við byggjum kerfi sem stendur og fólkið sem reiðir sig á almannatryggingar á skilið að við afgreiðum ekki stærsta þátt málsins sem táknræna yfirlýsingu heldur sem vandaða lagasetningu. Það er þess vegna sem ég get ekki stutt þetta frumvarp. Ég get aftur á móti stutt að við tökum það alvarlega sem vel er gert í þessu frumvarpi. Ég get stutt að við vinnum breytingar sem tryggja gagnsæi, fyrirsjáanleika og leiðréttingu þegar spá og raunþróun fer ekki saman án þess að setja allt kerfið á sjálfvirkan hraða sem hagkerfið ræður ekki við.

Ég vil benda á það sem ég sagði hér áðan, fyrr í ræðu minni, að í þessu frumvarpi er verið að leggja til sjálfvirka tengingu sem getur dregið úr hvata til vinnu á sama tíma og markmiðið í öðrum stórum breytingum er að styrkja hvata til vinnu. Á síðasta kjörtímabili gerði síðasta ríkisstjórn miklar breytingar á örorkukerfi okkar landsmanna sem tóku gildi 1. september á síðasta ári. Þar var lögð áhersla á að vera með hvata til að efla starfsgetu fólks, hvata til að fólk ætti möguleika til að snúa aftur út á vinnumarkaðinn, gera það með sínum hætti, á sínum hraða, í smáum skrefum eða stærri skrefum og hér er núna ríkisstjórnin, hin nýja verkstjórn Kristrúnar Frostadóttur, að leggja til frumvarp sem vinnur gegn þeim markmiðum sem við fögnuðum öll að tóku gildi 1. september á síðasta ári vegna þess að í þessu frumvarpi getur afleiðingin orðið sú að bætur almannatrygginga verði hærri en lægstu laun í samfélaginu og þar með drögum við úr hvata til atvinnuþátttöku. Mér finnst það hættulegt því að við þurfum, eins og ég hef sagt í ræðu minni, á öflugu atvinnulífi að halda. Við þurfum á eins mörgum vinnandi höndum að halda og hægt er til að halda hér uppi öflugu atvinnustigi. Þessar vinnandi hendur bera uppi velferðarkerfið okkar.

Ég hef ekki getið þess hér í ræðu minni að það er athyglisvert að helstu samtök vinnumarkaðarins mæla gegn þessari leið sem lögð er til í þessu frumvarpi. Ég hef nefnt í ræðu minni Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands en nú vil ég einnig nefna Alþýðusamband Íslands. Alþýðusambandið sendi umsögn um málið á síðasta þingi og aftur 30. október er málið var aftur lagt fram hér í haust þar sem segir orðrétt, með leyfi forseta:

„ASÍ telur ekki þörf á að breyta lögum þannig að þróun almannatrygginga sé fest við launavísitölu. Aðferðin sem lögð er til með lagabreytingunni rúmast innan núverandi laga.“

Áfram segir í umsögninni:

„Ástæða er þó sérstaklega til að gera athugasemd við umfjöllun um samráð í greinargerð. Rétt er að benda Alþingi á að umfjöllunin um samráð er ekki lýsandi. Þar segir að „almennt kom fram stuðningur við áformin“ og að „horft var til þeirra sjónarmiða sem fram komu í þeim umsögnum sem bárust að svo miklu leyti sem þótti unnt“.“

Þetta dregur Alþýðusambandið í efa og endurtekur í lok umsagnar sinnar:

„Það að festa lífeyri almannatrygginga við þróun launavísitölu vekur upp spurningar bæði tæknilegs eðlis og hvort aðferðin þjóni markmiðum sínum.“

Það er mjög sérstakt að hafa orðið vitni að því hér að ríkisstjórnin skuli síðan leggja þetta fram, sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur líka gagnrýnt og varað við og fjármálaráð hefur varað við sömuleiðis að þessi leið skuli farin, að ráðherra fjármála og efnahagsmála skuli samt tala fyrir því, að forsætisráðherra skuli tala fyrir því. Maður getur ekki annað en leitt hugann að því að það verði að uppfylla þetta áragamla baráttumál Flokks fólksins til að halda friðinn á stjórnarheimilinu, alveg sama hvað það kostar og alveg sama hvaða áhrif það kann að hafa.

Ég vil sömuleiðis nefna hér að laun eru endurgjald fyrir verðmætasköpun. Bætur almannatrygginga eiga að tryggja framfærslu. Hér er ólíku saman að jafna þar sem ekki hefur átt sér stað verðmætasköpun eða vinnuframlag á móti þessum greiðslum. Þess vegna verður að hafa í huga að sögulega séð hefur þróun launavísitölu verið töluvert umfram almennar kjarasamningsbundnar launahækkanir eða kostnaðarmat kjarasamninga.

Ég vil líka ítreka það hér, virðulegi forseti, að við í Sjálfstæðisflokknum viljum velferð sem er sterk. Við viljum réttlæti sem er raunverulegt. Við viljum kerfi sem hvetur til þátttöku þegar það er mögulegt og styður við þegar það er ekki mögulegt. (Forseti hringir.) Við viljum ríkisfjármál sem standa undir þessu til lengri tíma. Þetta frumvarp í núverandi mynd nær ekki því jafnvægi. (Forseti hringir.) Þetta er óábyrgt mál sem ríkisstjórnin leggur hér til. Ríkisstjórnin er að taka hér óábyrga afstöðu með galopin augun (Forseti hringir.) og ég get ekki stutt þetta frumvarp.