almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp um breytingar á lögum um almannatryggingar sem snertir stóran og sumpart viðkvæman hóp samfélagsins, lífeyrisþega, eldri borgara og fólk með skerta starfsgetu, en jafnframt hverfist það auðvitað um það sem við þurfum alltaf að hafa í huga hér í þessum þingsal, ekki bara stundum heldur alltaf. Það eru sjálf ríkisfjármálin og þau eru sannarlega viðkvæm fyrir svo stórtækum breytingum eins og eru boðaðar í þessu frumvarpi um breytingar á lögum um almannatryggingar. Það er ekki léttvægt þegar við þingmenn ræðum um afkomu fólks sem treystir á almannatryggingar. Við tökum því ekki af léttúð. Við megum heldur ekki taka því af léttúð þegar við ræðum tillögu um varanlega og sjálfvirka reglu sem getur haft víðtæk áhrif á verðbólgu, víðtæk áhrif á vexti og víðtæk áhrif á hvata á vinnumarkaði og sjálfbærni opinberra fjármála til framtíðar.
Mig langar því að vísa hér í álit 1. minni hluta hv. velferðarnefndar sem styður við markmið frumvarpsins um að vinna gegn fátækt og tryggja mannsæmandi framfærslu fólks sem getur ekki treyst á launatekjur. Um það held ég og vona að ríki víðtæk og þverpólitísk sátt í þessum sal. En einmitt þess vegna verðum við að gera þetta rétt og við verðum að vanda til verka þegar við ætlum að ráðast í svo miklar breytingar.
Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að umræðan sem við tökum um þetta mál sé byggð á staðreyndum, mál sem getur vakið miklar tilfinningar. Í nefndaráliti 1. minni hluta sem liggur hér frammi og ég hvet alla til að lesa er vísað til svara bæði hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra þar sem kemur fram að frá aldamótum hafi bætur almannatrygginga hækkað um tvöfalt á við verðlag og umfram launaþróun. Það er mikilvægt að við höfum þá staðreynd í huga og með því að benda á þessa staðreynd erum við alls ekki að halda því fram að kerfið sé fullkomið en fullyrðingar um að bætur hafi setið algjörlega eftir, sem einhverjir hafa haldið fram, m.a. í hópi stjórnarliða, standast ekki nánari skoðun. Umræðan, eins og ég sagði, verður að byggjast á gögnum og staðreyndum, ekki á tilfinningu eða slagorðum.
Kjarni þessa frumvarps og það sem við erum í raun að fjalla um hér í dag er tillagan um að tengja hækkanir bóta almannatrygginga beint við launavísitölu í stað þess sem gildandi lög kveða á um, þ.e. launaþróun, með þeirri tryggingu að hækkanir verði aldrei lægri en verðlagsþróun. Í gildandi kerfi er þegar til staðar tvöföld vernd, þ.e. bæturnar eiga að taka mið af launaþróun en mega aldrei hækka minna en verðlag. Þetta er sterk trygging og í rauninni sterkari trygging en margt launafólk býr við. Það er einmitt komið aðeins inn á löggjöfina um núgildandi kerfi í umsögn ASÍ við þetta mál. Munurinn á launaþróun og launavísitölu skiptir hér sköpum. Launavísitalan fangar ekki bara kjarasamningsbundnar hækkanir heldur líka svokallað launaskrið, breytingar á starfshlutföllum, starfsaldurshækkanir og ýmsa fleiri þætti sem eru eðlilegir innan launakerfa en eru ekki eðlilegur eða sjálfbær grunnur til að byggja á hækkanir á bótum almannatrygginga sjálfkrafa ár eftir ár.
Í nefndaráliti 1. minni hluta er dregið fram að með frumvarpinu sé lagt til að um 20% útgjalda ríkissjóðs aukist sjálfkrafa ár hvert án þess að tekjur fylgi á móti eða fullnægjandi heildarmat fari fram á áhrifum. 20%. Verður ekki að ræða það hér af fullri alvöru og fullum þunga? Mér finnst viðveran hér og mælendaskráin í dag ekki benda til þess að svo sé, að svo mikið sé hér undir í einu frumvarpi. Þetta gengur í berhögg við meginmarkmið laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, og grunngildi þeirra sem eru varfærni, sjálfbærni og stöðugleiki. Fjármálaráð og fjármála- og efnahagsráðuneytið hafa bæði varað við því að hér sé um að ræða grundvallarbreytingu á fjármögnun almannatryggingakerfisins án þess að fyrir liggi fullnægjandi greiningar á áhrifum hennar til framtíðar. Það er reyndar orðið kunnuglegt stef hér á Alþingi að þeir sem stýra þessu landi setji það ekkert sérstaklega fyrir sig að það liggi ekki fyrir greiningar á áhrifum þess sem þeir leggja til hér og slík vinnubrögð og slík lagasetning eru hreinlega ekki ábyrg.
Umsagnaraðilar nefndarinnar voru skýrir. Samtök atvinnulífsins benda á að þróun launavísitölu hafi sögulega verið umfram efnahagslegt svigrúm og þannig aukið verðbólguþrýsting og viðhaldið hærri vöxtum. Það er vandamál sem hefur ekki farið lágt í umræðunni hér á Íslandi. Beintenging bóta við slíka þróun magnar upp vandann í stað þess að leysa hann og ASÍ, Alþýðusambandið, hefur áhyggjur af því frumvarpi sem er hér til umfjöllunar og segir það vekja spurningar. Það bendir m.a. á að breytingin muni í reynd leiða til þess að greiðslur almannatrygginga dragist aftur úr lágtekjuhópum, þvert á yfirlýst markmið frumvarpsins. Skilaboð sambandsins eru skýr. Það leggst gegn því að þetta frumvarp verði að lögum og ég hvet fólk sömuleiðis til þess að lesa umsögn Alþýðusambandsins. Þetta eitt og sér ætti að verða þess valdandi að við stöldruðum við, jafnvel þeir allra hörðustu og allra áköfustu á vinstri vængnum sem nú stýra þjóðarskútunni.
Virðulegi forseti. Það er heldur ekki hægt að líta fram hjá hvötunum sem eru skapaðir í þessu máli og hv. þm. Hildur Sverrisdóttir fór ágætlega yfir hér í ræðu fyrr í kvöld. Í nefndaráliti 1. minni hluta er rakið að ef þetta fyrirkomulag hefði gilt frá aldamótum hefðu bætur almannatrygginga hækkað um 584% á meðan laun hefðu hækkað um 518% og verðlag um 315%, 584 annars vegar og hins vegar 518 og 315. Slík þróun bóta umfram laun dregur úr hvata til atvinnuþátttöku og gengur gegn markmiðum nýsamþykktra breytinga á örorkukerfinu sem einmitt miða að aukinni þátttöku fólks með skerta starfsgetu.
Þetta er ekki ályktun sem er byggð á gildismati eða tilfinningum. Þetta er einföld og efnahagsleg staðreynd. Þetta er staðreynd og hún liggur fyrir. Það er ekki gott. Það er ekki gott að við drögum úr hvata til atvinnuþátttöku. Til þess að halda uppi sterku velferðarkerfi, til þess að geta tekið sem allra best utan um okkar viðkvæmustu hópa, þurfum við öflugt atvinnulíf. Ég er þegar búin að koma inn á að ég tel okkur sem hér sitjum á Alþingi, fulltrúar allra flokka, sammála um þetta markmið, sammála um það að við tökum sem allra best utan um okkar viðkvæmustu hópa. Svo getum við verið ósammála um hvaða leið sé best að fara að því markmiði og það er í raun það sem við erum að ræða hér, ekki hvort við eigum að stefna að þessu markmiði heldur hvernig við náum því með sem allra bestum og ábyrgustum hætti. Ég hef áhyggjur af því að við sem hér vinnum, fulltrúar allra flokka á Alþingi, séum ekki öll meðvituð um að það er atvinnulífið sem heldur uppi velferðinni á Íslandi. Erum við öll meðvituð um að það er atvinnulífið sem framleiðir verðmætin sem greiða fyrir íslenskt velferðarkerfi? Ég hef haft af því áhyggjur, reyndar ekki bara í tengslum við þetta mál heldur almennt, að fólk geri sér ekki grein fyrir því, ekki einu sinni þeir sem sitja hér á Alþingi og eiga auðvitað að gera sér grein fyrir þessu og vera búnir að setja sig inn í þetta.
Það vekur líka sérstaka athygli að frumvarpið kveður á um gólf fyrir hækkanir bóta án þess að sambærilegt gólf sé til staðar fyrir laun á vinnumarkaði. Fjármálaráð bendir réttilega á að á síðustu tveimur áratugum hafi launavísitala fjórum sinnum hækkað minna en verðlag. Slík raunlaunalækkun er oft sársaukafull en hún er stundum nauðsynleg til að koma jafnvægi á hagkerfið. Það að undanskilja almannatryggingakerfið frá slíkri aðlögun gerir baráttuna við verðbólgu erfiðari og skapar óeðlilega hvata. Það er, eins vond og staðan er sem við búum við í dag, ágætt að við séum að ræða þetta mál einmitt í samhengi við þá þrálátu verðbólgu sem við höfum verið að eiga við því það setur málið í ákveðið samhengi og skapar e.t.v. betri aðstæður fyrir fólk til að skilja það sem við erum að ræða hér inni á Alþingi.
Við verðum nefnilega að horfa til núverandi efnahagsástands en hv. þm. Jón Gunnarsson fór ágætlega yfir það í ræðu hér á undan mér. Það væri reyndar ágætt að hæstv. ríkisstjórn gerði það, sem sagt horfði til núverandi efnahagsástands, horfðist í augu við efnahagsástandið með raunsæisgleraugum en ekki með óskhyggju og ímynduðum verkfærum. Staðan er sú, eins og við þekkjum ágætlega orðið, að verðbólga hefur aukist verulega á síðustu mánuðum og langtímakjarasamningar frá 2024 eru þegar undir miklu álagi. Við slíkar aðstæður er hreinlega óábyrgt að samþykkja frumvarp sem felur í sér sjálfvirka og mögulega stórkostlega útgjaldaaukningu ríkissjóðs.
Það er ekki ábyrg hagstjórn. Var það ekki einmitt það sem forsvarsmenn, a.m.k. forsvarsmenn tveggja ríkisstjórnarflokka, lofuðu kjósendum í aðdraganda síðustu kosninga og reyndar alla tíð síðan með ýmsum og fögrum fyrirheitum?
Virðulegi forseti. Mig langar að undirstrika að lokum að þessi afstaða mín og okkar sem höfum hér talað fer ekki gegn fólkinu í þessu landi. Hún byggist á því að standa með fólkinu, með landsmönnum, bæði núna og líka til framtíðar. Við viljum bæta stöðu tekjulægstu lífeyrisþega eins og við höfum verið að gera undanfarin ár og tölur sýna svo skýrt og sömuleiðis nýlegar kerfisbreytingar sem við eigum eftir að sjá full áhrif af. En með því erum við ekki að segja að það sé ekki verk að vinna og, eins og ég sagði hér áðan, að kerfið sé fullkomið. Við erum ekki að halda því fram. Við viljum hins vegar bæta stöðuna enn frekar með markvissum, gagnsæjum og sjálfbærum hætti, ekki með lagareglu eins og hér er til umfjöllunar sem getur kynt undir verðbólgu, hækkað vexti og grafið undan kerfinu sem hún á að verja. Það kemur sér illa fyrir alla landsmenn, þar með talið þann hóp sem er undir í þessu frumvarpi. Í ljósi alvarlegra athugasemda umsagnaraðila, fjármálaráðs og fjármála- og efnahagsráðuneytisins og í ljósi skorts á fullnægjandi kostnaðar- og áhrifamati telur 1. minni hluti velferðarnefndar ótækt að frumvarpið verði að lögum óbreytt og leggur því til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar. Það er yfirveguð tillaga, ábyrg tillaga og ég tek undir þessa tillögu minni hlutans.