almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir ræðuna. Við stjórnarliðar höfum verið hér í allan dag. Við sem erum í velferðarnefnd berum ábyrgð á þessu máli inn til þingsins og fylgdum því eftir hér í dag. Við sátum hér og veittum andsvör og fleira fyrir meðlimi í velferðarnefnd sem tóku hér til máls og færðu rök fyrir máli sínu þannig að ég lít svo á að við höfum fullkomlega staðist það próf að fylgja þessu máli eftir. Og í raun og veru er þetta mál þess eðlis að það er grundvallaratriði hjá þessari ríkisstjórn. Samfylkingin setti á kosningastefnuskrá sína fyrir kosningar að við ætluðum að stoppa kjaragliðnun sem var í gangi á milli bótaþega og lægstu launa og það er staðreynd að kjörin hafa gliðnað. Það er það sem við erum að gera. Við erum ekki að bæta gatið, við erum ekki að loka gatinu, við erum eingöngu að stöðva þessa kjaragliðnun. Og hin hástemmdu lýsingarorð sem hafa verið notuð í dag yfir því hræðilega ástandi sem hér mun verða, það er örlítil „melódramatík“ í gangi hér í dag og bara gott og gaman að sjá að fólk hafi miklar tilfinningar í þessum málum.
Það sem mig langar til þess að vita kannski og spyrja hv. þingmann er: Hvað viljið þið gera? Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið með stjórn á þessum málum ansi lengi og undir ykkar stjórn varð til þessi kjaragliðnun sem er raunveruleg. Því var lýst hér í dag að fólk vildi gera gott fyrir þennan hóp og að þetta væri hópur sem skipti máli. En hvaða hugmyndir hafði hv. þingmaður um það hvað mætti gera þá?