almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Varðandi athugasemdir fjármálaráðuneytisins þá voru gerðar tilteknar breytingar á þessu frumvarpi í haust þannig að þær breytingar sem verið er að vinna með taka gildi síðar en áður var áætlað. Við fengum fullvissu um að það þýddi að fjármálaráðuneytið væri í raun og veru mun sáttara við niðurstöðu þessa og að þetta frumvarp færi í gang. Þetta frumvarp er unnið með fullu samþykki ríkisstjórnarinnar og þar með talið hæstv. fjármálaráðherra. Ríkisstjórnin er með þetta mál á sinni stefnuskrá. Það er verið að koma þessu í gegn og við teljum í nefndinni, miðað við þær upplýsingar sem við höfum haft og fengið, að það hafi verið nægilega vel unnið til þess að við treystum okkur til að styðja það alla leið. Þannig er það bara.
Hvað varðar hækkun bóta er hægt að taka mjög afmarkaðan hluta af bótakerfinu, sem er þá ungt fólk með fulla aldursviðbót, með fullar bætur, sem hefur hækkað mikið vegna þess að það var mjög lágt fyrir. En kjaragliðnun hópsins í heild er staðreynd.