157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

hagstjórn ríkisstjórnarinnar.

[10:32]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Við fengum í gær enn eina staðfestinguna á því að planið hjá ríkisstjórninni er ekki að virka. Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum í 7,25% vegna viðvarandi og þrálátrar verðbólgu sem ekkert bendir til að sé á niðurleið. Síðastliðna viku hafa hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar keppst við að kenna öllum öðrum um stöðuna í stað þess að líta í eigin barm. En hvað segja þeir nú þegar Seðlabankinn hefur staðfest að staðan sé fyrst og fremst komin til vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar, vegna gjaldahækkana ríkisstjórnarinnar á heimilin í landinu og á fyrirtækin í landinu nú um áramótin? Á sama tíma ætlar hæstv. forsætisráðherra að skoða það að setja kröfur um lágmarksafborganir lána. Hún sagði líka að það væri til fólk á háum tekjum sem væri að nýta sér að vera ekki með háar afborganir. Og það gæti mögulega verið. Er það plan ríkisstjórnarinnar að velta ábyrgðinni á hagstjórninni yfir á fjölskyldurnar í landinu? Hvað annað réttlætir að stjórnvöld taki sér aukið forræði yfir því hvers konar lán heimilin velja sér? Er fólkinu í landinu ekki bara best treystandi fyrir því að velja hvað henti þeirra heimilisrekstri best? Veit hæstv. ríkisstjórn best hvað er fólkinu í landinu fyrir bestu, betur en fólkið sjálft? Það er eðlilegt að spyrja hvort stóra plan ríkisstjórnarinnar sé í raun fimm ára stalínísk áætlun, svo að ég vitni nú orðrétt í hagfræðinginn Má Wolfgang Mixa, því að það ber þess öll merki, þetta plan ríkisstjórnarinnar. Þetta er forræðishyggja á hæsta stigi í boði Samfylkingar og Viðreisnar.