157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

staða og horfur í efnahagsmálum.

[10:50]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Eflaust sér hv. formaður Framsóknarflokksins ávinning í því að mála hér skrattann á vegginn. Þetta er sami einstaklingur og var í 10% verðbólgu á sínum tíma. Gott og vel, lesum okkur bara til um hvað kemur fram í nýbirtri spá Seðlabankans. Þar kemur fram að það sé hvorki útlit fyrir samdrátt í hagkerfinu né mikla aukningu í atvinnuleysi. Þetta er ekki mín túlkun, þetta er ekki túlkun ríkisstjórnarinnar, þetta er spá Seðlabankans. Þar kemur líka fram að raunverð íbúða hjaðni hóflega á komandi misserum án þess þó að nafnverð hækki. Þetta hlýtur að vera jákvætt. Er þetta ekki það sem stefnt var að? Við ætlum að reyna að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði. Er hér blússandi ör hagvöxtur úr jafnvægi? Er hér brjáluð fólksfjölgun? Nei, við erum að komast í jafnvægi. Það var það sem íslenskt hagkerfi þurfti á að halda.

Hvað varðar óþægilegar ákvarðanir höfum við ekki verið feimin við það að ef maður ætlar að ná jákvæðri afkomu á ríkissjóði þá er ekki hægt að koma hér upp í pontu eða stýra Stjórnarráðinu með þeim hætti að maður geri allt fyrir alla alls staðar og haldi því fram að það verði þægilegt. Það er sú stefna sem kom okkur í þá stöðu sem við vorum í áður. Það er sú stefna sem veldur viðvarandi verðbólgu og háu vaxtastigi á Íslandi.

Hvað varðar verðtrygginguna þá höfum við sagt að við ætlum að stíga varfærin skref í átt að því að draga úr vægi hennar í hagkerfinu. Mér finnst merkilegt að heyra það í þessum sal — þegar flestir sem hafa verið lengi á þingi og líka í Stjórnarráðinu vita að þetta hefur verið vandamálið í íslensku fjármálakerfi. Þetta hefur gert það að verkum að vextir hafa þurft að vera hærri en ella vegna þess að miðlun peningastefnunnar hefur gengið erfiðlega í slíku umhverfi. Það vita þetta allir en það vita líka allir, eins og hæstv. ríkisstjórn, að það er erfitt að vinda ofan af þessu. En við áttum okkur á því að til lengri tíma er það nauðsynlegt og við treystum okkur í það samtal.