staða og horfur í efnahagsmálum.
Virðulegur forseti. Af því að hæstv. forsætisráðherra var svo smekklegur að segja að þessi einstaklingur hefði verið í ríkisstjórn í 10% verðbólgu þá er það rétt. En þessi einstaklingur náði henni líka niður í 4,4% og það var búið að lækka vextina tvisvar áður en núverandi ríkisstjórn komst til valda. Síðan héldu þeir áfram að lækka í nokkra mánuði þangað til Seðlabankinn sá í hvað stefndi. Þá hætti Seðlabankinn að lækka vexti. Hann lækkaði þá einu sinni í nóvember vegna þess að ríkisstjórnin hafði ekki undirbúið það sem gerðist á fasteignalánamarkaði. Forsætisráðherra svaraði engu um skuldsetningu heimila, af hverju hún telur að það sé gírun í íslensku heimilishaldi í lánamálum. Ég, sem formaður Framsóknarflokksins og fyrir hönd Framsóknarflokksins, er algjörlega sammála því og það er nýskeð að Samfylkingin er orðin sammála okkur í því að verðtryggingin sé vandamál í íslensku samfélagi. Við þurfum að taka á verðtryggingunni. Þess vegna höfum við lagt fram hugmyndir um hvernig það verður gert með því að bjóða fram óverðtryggð fasteignalán til langs tíma með aðkomu og vilja ríkisins. Þetta höfum við gert til að gera eitthvað í því annað en að fara að segja við fólk: Heyrðu, þú hefur greinilega keypt of stórt húsnæði. Þú skuldar of mikið. Þú getur greinilega borgað meira til ríkisins eða til bankanna og við ætlum að fara í það. Hvers lags eiginlega stjórnsemi er þetta í staðinn fyrir að taka þau mál sem eru þó til umfjöllunar hér í þinginu?