verðlagsþróun og forsendur kjarasamninga.
Frú forseti. Í mars 2024 voru undirritaðir stefnumarkandi langtímakjarasamningar á almennum vinnumarkaði með gildistíma til loka janúar 2028. Markmiðið með samningunum var skýrt, að ná verðbólgunni niður og skapa rými fyrir lægri vexti. Þetta voru ekki einungis launasamningar heldur einnig stöðugleikasamningur fyrir hagkerfið. Þess vegna eru í samningnum forsenduákvæði sem kveða á um viðbrögð ef forsendur um verðlagsþróun ganga ekki eftir. Nú blasir við sú mynd að verðbólga er 5,2%, stýrivextir Seðlabankans eru enn 7,25% og óverðtryggð lán heimila bera víða 8–9% vexti. Við þessar aðstæður eykst hættan á því að forsendur samninganna veikist, óvissan magnist og traustið fari að rofna. Ef kjarasamningar halda ekki blasir við uppnám í efnahagsstjórninni, verri verðbólguvæntingar, þrýstingur á hærra vaxtastig og minni fjárfesting og stöðugleiki.
Spurning mín til hæstv. forsætisráðherra er því þessi: Hvaða skýru aðgerða hyggst ríkisstjórnin grípa til á næstu vikum og mánuðum til að verja meginmarkmið langtímasamninganna þannig að kjarasamningar haldi? Breytingar á fjármálaáætlun munu ekki skipta sköpum þegar kemur að þessu.
Ég vil einnig spyrja um félagslegu hliðina í þessu samhengi því að hún skiptir máli fyrir stöðugleika og samfélagslegt þol. Í umræðu við fjármálaráðherra í þessari viku skildi ég svör hans þannig að hann gerði lítið úr möguleikum og markvissum tímabundnum úrræðum til að létta undir með barnafjölskyldum í dag sem eiga einmitt um hver einustu mánaðamót erfitt með að greiða reikningana sína. Er forsætisráðherra tilbúin að skoða afmarkaðar tekjutengdar leiðir sem létta undir með þeim sem mest þurfa á því að halda án þess að kynda undir almennri eftirspurn?