157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

verðlagsþróun og forsendur kjarasamninga.

[10:58]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Já, við erum meðvituð um að það er mikilvægt að við förum inn í aðdraganda endurskoðunar kjarasamninga með ákveðinn stöðugleika í farteskinu. Þetta er ástæðan fyrir því að við viljum halda sjó þegar kemur að okkar áætlunum. Þrátt fyrir þær tölur sem birtust okkur í janúar þá kemur skýrt fram — og fyrst fólk er að vitna í Seðlabankann þá er allt í lagi að vitna í allt sem Seðlabankinn segir — að undirliggjandi verðbólga er á betri stað en mæld verðbólga og verðbólguhorfur hafa lítið breyst. Það stefnir í, samkvæmt spá Seðlabankans og samkvæmt plani ríkisstjórnar, sem verður óbreytt, og það er það sem er gott við það svo við getum haldið sjó, að verðbólgan verði komin í um 4% um mitt ár. Þetta er eitthvað sem við verðum að horfast í augu við.

Það skiptir líka miklu máli að við sjáum raunverð húsnæðis fara lækkandi vegna þess að aðgengi að fjármagni er ekki það eina sem skiptir máli heldur hversu mikið þú þarft að skuldsetja þig fyrir undirliggjandi eign. Við getum ekki bara verið með úrræði sem felast í því að gera það ódýrara fyrir fólk að skuldsetja sig meira og meira, það festir það þá í klyfjum þess að vera með hærri og hærri afborganir þegar á líður. Þess vegna reyndum við einmitt að fara þá leið að festa betur í sessi hlutdeildarlánakerfi, sem m.a. Framsóknarflokkurinn kom að til þess að styrkja stöðu yngra fólks og tekjulægri heimila. Þetta eru úrræði sem við sjáum að geta styrkt hvað mest stöðu þessara hópa. Þetta er mánaðarleg úthlutun sem er núna búið að koma á, fyrirsjáanleiki í fjármögnun í kerfinu, og við erum strax farin að sjá tölur sem húsnæðismálaráðherra mun geta vitnað í þegar kemur að úthlutun á þessum hlutdeildarlánum, að það hafi gengið betur að koma því út. Þetta er sú leið sem ríkisstjórnin er núna fyrst og fremst að einblína á sem snýr að fjölskyldum í landinu.