157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

verðlagsþróun og forsendur kjarasamninga.

[11:00]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég verð fyrir verulegum vonbrigðum þegar ég heyri hvernig hæstv. forsætisráðherra og núverandi ríkisstjórn ætla að taka á málinu. Þau ætla hreinlega ekki að gera neitt. Þau ætla bara að halda öllu óbreyttu áfram og hugsanlega eru kjarasamningar í hættu í haust. Ef ríkisstjórnin ætlar að bíða og vona þá eykst hættan á því að forsenduákvæði samninganna verði virkjuð og við munum fara inn í vítahring sem er dýr fyrir heimili, dýr fyrir fyrirtæki og dýr fyrir ríkissjóð. Hæstv. forsætisráðherra segir hér að þetta sé óþægilegt, þau viti að þetta sé óþægilegt og að síðustu tvær mælingar hafi verið óþægilegar. Já, þetta er líka óþægilegt fyrir fólkið í landinu. Þetta er óþægilegt fyrir barnafjölskyldur um hver einustu mánaðamót. Þetta er óþægilegt fyrir barnafjölskyldur sem fara yfir hverja búðarferð sem þau fara í og sjá matarkörfuna hækka.

Ætlar hæstv. ríkisstjórn að koma með einhverjar afmarkaðar aðgerðir fyrir tiltekinn hóp sem verst hefur það í samfélaginu einmitt núna þegar mest reynir á? Eða ætla þau bara að bíða og vona og sjá (Forseti hringir.) hvort planið virki sem augljóslega er að stefna í einhverja aðra átt en áætlanir gerðu ráð fyrir?