verðlagsþróun og forsendur kjarasamninga.
Frú forseti. Ég fagna því að það sé verið að vekja athygli á stöðu ákveðinna viðkvæmra hópa. Ég legg hins vegar áherslu á það að við eltum ekki uppi þennan verðbólguvanda sem við erum nú komin með með því að kasta bara auknum peningum á hann. Það liggur alveg fyrir að það sem mun styrkja best stöðu fjölskyldnanna í landinu er lækkun vaxta og lækkun verðbólgu og þess vegna verðum við að halda plani. Það er einn stærsti einstaki útgjaldaliðurinn hjá fjölskyldunum í landinu. Ég vil líka leggja áherslu á þau úrræði sem við erum að tala um á húsnæðismarkaði, sem skipta miklu máli fyrir ungt fólk. Við vorum áðan að ræða um kjaragliðnunarmál, um bindingu launavísitölu — og það var verið að gagnrýna það — þar sem verið var að verja viðkvæmustu hópana í landinu. Það verður ekki bæði haldið og sleppt. Auðvitað myndi maður gjarnan vilja gera meira en við erum með plan, við erum með áætlun, og við erum að fylgja því. Við viljum gjarnan gera betur þegar kemur að barnabótum og öðrum þáttum í kerfinu en við getum ekki gert allt í einu því að þá fyrst þrengist vítahringurinn.