157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

samræmt námsmat í grunnskólum.

[11:05]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen hjartanlega fyrir þessa góðu fyrirspurn um leið og ég vil segja við hann að ég er ofur þakklát fyrir að hvað hann er vakinn og sofinn yfir velferð barnanna okkar hvað lýtur að menntamálum. Nú höfum við ekki haft þessi svokölluðu samræmdu próf um einhvern tíma og eins og hv. þingmaður bendir á þá munu þessi próf skilyrða sig meira út á matsferilinn, hvernig barnið er statt hverju sinni. Við teljum að í fyrsta skipti munum við ná betur utan um stöðu barnanna og sjá hvar þau eru stödd í þessum prófum sem verða tekin í 4., 6. og 10. bekk úti um allt land. Vissi ég að það yrði alltaf sama prófið? Nei, ég áttaði mig ekki á því. Ég átta mig engan veginn á því að sama prófið sé ár eftir ár nema þá að það kemur náttúrlega nýr bekkur, nýr árgangur upp í 4. bekk, 6. bekk og 10. bekk. En ég hefði haldið að það væri nú farsælla að við myndum koma með nýja útgáfu af prófunum á hverju einasta ári. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að benda mér á þetta sem ég hafði ekki áttað mig á, fyrir utan það að ég get sagt svona bara hér og nú að ég er búin að hringja í hv. þingmann af því að ég þarf eiginlega að biðja hann um aðstoð. Ég vil gjarnan fá að fletta upp í honum og hans þekkingu vegna þess að hér hef ég upplifað það með hv. þingmanni frá því að hann kom á Alþingi hversu mikið hann brennur fyrir menntamálum og það geri ég líka. En þetta hafði ég ekki hugmynd um, að við værum að fara að nota sömu prófin ár eftir ár og ég mun sannarlega skoða það.