157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

samræmt námsmat í grunnskólum.

[11:09]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn. Það sem ég hef sérstaklega heillast af, hvað lýtur að finnsku leiðinni, er hvernig barnið er í raun sett í algjöran forgang. Það er bara í forgrunni þar sem allt snýst um velferð barnsins, stuðning við kennara og hreyfingu, ánægju og allt það sem ég tel að sé barni fyrir bestu. Það er það sem ég horfi sérstaklega til og líka sá árangur sem varð bersýnilega hjá þeim þegar þeir komu með gjörbreytta stefnu í menntamálum á sínum tíma þegar þeir höfðu í raun verið að skrapa botninn eins og við erum að gera núna þegar kemur að lesskilningi barnanna okkar og raunvísindagreinum og öðru slíku.

Hvers vegna hallar undan fæti hjá þeim núna og hvar hafa þeir beygt út af þeirri leið sem ég kynnti mér þegar ég var að kynna mér finnsku leiðina? Ég átta mig hins vegar ekki á því, hv. þingmaður. Það breytir ekki þeirri staðreynd að það eru margar leiðir til sem hafa virkað vel hvað varðar námsárangur barnanna okkar og við munum reyna að tileinka okkur það sem er best. (Forseti hringir.) Sérstaklega munum við einbeita okkur að þeim skólum sem eiga virkilega erfitt og standa höllum fæti hvað þetta varðar en við þurfum ekki að vera að skipta okkur af því sem gengur vel.