157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2025.

417. mál
[11:38]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. samstarfsráðherra Norðurlanda kærlega fyrir hans skýrsluflutning. Ég er með eina spurningu. Í skýrslunni er talað um afnám stjórnsýsluhindrana og áherslu á stafrænan hreyfanleika. Nú er ég einn þeirra tugþúsunda Íslendinga sem hafa notið þess að búa um stund í öðru norrænu ríki. Ég bjó um stund í Danmörku þegar ég var námsmaður þar og kynntist því ferli að flytja á milli tveggja Norðurlanda, sem var kannski ekki svo flókið samanborið við flutning milli margra annarra landa. Ég sé hér að það hefur verið sett fram ný áætlun um frjálsa för fólks á Norðurlöndum 2025–2030 og það á að koma á nýju stjórnsýsluhindranaráði — fallegt nafn þar á ferð.

Ég er aðeins að velta fyrir mér hvort ráðherrann geti með einhverju móti aðeins dýpkað umræðuna og frætt okkur um hvaða stjórnsýsluhindranir það helst eru sem í dag eru taldar vera í vegi fyrir flutningi fólks á Norðurlöndum. Hér eru stafrænn hreyfanleiki og kennslapörun nefnd. Er áherslan fyrst og fremst á tæknilegar úrlausnir eða eru einhverjar lagalegar hindranir sem fólk telur að ástæða sé til að grípa til sérstakra ráðstafana gegn?