störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2025.
Virðulegur forseti. Svo að ég víki bara strax að því síðasta sem hv. þingmaður nefndi og þróuninni á því samtali sem nú á sér stað innan Evrópusambandsins, þar eru jú þrjú af þessum ríkjum líka þátttakendur. Þá má alveg segja að þessi vinna okkar innan Norðurlandanna sé svolítið drifin áfram af því sem er að gerast þar. Þetta er veruleiki sem er greinilega mjög brýnn og nauðsynlegur og við erum að fylgjast mjög vel með því hvernig það er allt gert. Einstök ríki innan Norðurlandanna hafa líka náð að leysa mál við önnur lönd í tvíhliða samkomulagi, t.d. Finnland og Eistland, minnir mig, og það segir okkur að ef þetta er hægt með þeim hætti þá ættum við að geta þetta.
Ég held að Evrópusambandið sé örugglega að fylgjast með okkar vinnu og við með þeim. Það er mjög víðtæk vinna núna, þetta mun svolítið hvíla á herðum dómsmálaráðherra sem fer með Þjóðskrá Íslands. Þannig að þetta gengur vel. Það hefur ekki verið mikið fjallað um það að stíga svo stórt skref að taka upp sameiginlegar kennitölur á svæðinu, þó svo að það sé stundum nefnt. Við höfum fyrst og fremst verið að reyna að leysa þetta með þeim hætti að hvert og eitt ríki haldi áfram með sín rafrænu skilríki. Það getur vel verið að það verði svo veruleikinn einhvern tímann. Mér fannst gott að hv. þingmaður nefndi það að við njótum eiginlega, ef eitthvað er, meira norræns samstarfs heldur en hin norrænu ríkin samstarfs við okkur. Norrænu ríkin hafa sýnt mikla ábyrgð, það eru margir Íslendingar sem búa þar og vinna. Sjálfur lærði ég t.d. þar á áttunda áratugnum þegar ég átti engan möguleika á að læra mitt fag hér á Íslandi og þá naut maður þessa samstarfs sem hefur verið ríkt. (Forseti hringir.) Það er fjölmargt sem við erum að ræða.