norrænt samstarf 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir góða fyrirspurn. Þessu er til að svara: Nei, að mér vitandi hefur þessi ríkisstjórn ekki mótað sér sérstaka stefnu um að lyfta norrænu alþjóðastarfi þingmanna upp frekar en öðru. Ég vil hins vegar, sem formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, segja að það væri ekki ómálefnalegt að hefja slíka umræðu um það hvernig við getum samþætt starf og alþjóðastarf þingmanna og gert það markvissara á vettvangi norrænna málefna; hvort sem það er innan NATO, innan Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu eða ÖSE-þingmannavettvangsins og hvernig við tökum sérstaklega tal af félögum okkar frá Norðurlöndum á þessum vettvangi og ræðum við þá um annars vegar íslenska hagsmunagæslu og svo hins vegar þær samnorrænu áherslur sem við viljum leggja áherslu á hverju sinni.
Hér tölum við oft um sameiginleg gildi og að þau verði að vera okkar leiðarljós í norrænu samstarfi og í alþjóðasamstarfi og að þessi gildi bindi okkur saman. Hver eru þessi gildi? Hvað gerum við þegar þeim er ógnað á einn eða annan hátt? Þetta er auðvitað pólitískt samtal. Hvar við ættum að byrja skal ég ekki segja. Ég myndi glöð taka það að mér, í samvinnu við þá aðila sem vilja gefa sig að því, að eiga einhvers konar samtal um það hvaða áherslur á að leggja ársfjórðungslega gott sem, þegar stórir fundir eru fram undan; hvaða tækifæri eru til hvaða samtals miðað við þá gesti sem eru mögulega að heimsækja þennan vettvang hverju sinni. Ég held að það væri góð nýting á okkar tíma og komi í veg fyrir það, sem oft er kannski tilfellið þegar maður sækir erlent alþjóðastarf, að maður viti ekki nákvæmlega hvaða tækifæri eru í því að tala við hina og þessa utan þessara formlegu funda. Þó að maður láti að sér kveða og haldi stutta ræðu er það gífurlega vanmetið að nýta tímann vel utan funda.