157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

norrænt samstarf 2025.

421. mál
[12:24]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og fagna hennar jákvæðu viðbrögðum við þessari fyrirspurn. Þarna eru tækifæri. Það eru tækifæri til að nýta betur samvinnu á milli ólíkra hópa innan þingsins. Það er augljóst að ef við gerum það náum við miklu meiri slagkrafti þegar kemur að því að flytja skilaboð Íslands erlendis, þegar kemur að því að hafa áhrif á mál sem við viljum láta skipta máli í umræðunni, þegar kemur að því að hafa áhrif, t.d. á stöðu Grænlands þar sem þingheimur allur hefur verið sammála um að styðja þétt við bakið á Grænlendingum. Vinnum meira í þá átt.

Hér í minni seinni spurningu vil ég beina sjónum að því sem hv. þingmaður kom inn á sem er samvinna við Grænlendinga og hvernig við styðjum við þá. Hv. þingmaður nefndi Helsingforsvinnuna, sem er gríðarlega mikilvæg, en það er líka mikilvægt að við séum með beina samvinnu á sviði innviða, á sviði menntunar og á sviði heilbrigðismála eins og hv. þingmaður kom líka inn á að ákveðnu leyti. Því vil ég spyrja hv. þingmann: Telur hv. þingmaður að það séu tækifæri í að nýta t.d. Íslandsdeild Norðurlandaráðs til að setja fram markvissar tillögur að því hvernig við eigum að koma til framkvæmda sumum af þeim skilgreindu verkefnum sem unnin hafa verið á fyrri kjörtímabilum, t.d. Grænlandsskýrslunni, sem fela í sér raunverulega samvinnu um praktísk atriði, alveg eins og við höfum þegar gert í samvinnu við Grænlendinga á sviði orkumála? Þar höfum við verið að vinna, Landsvirkjun Íslands með landsvirkjun Grænlands, að markvissum verkefnum saman. Það er þannig sem raunveruleg verðmæti skapast og samvinna á milli fólks verður til. Það dugar ekki að við hér tölum okkur hás um hvað sé mikilvægt. Það skiptir máli að fjármagn fylgi með og að samvinnan sé á gólfinu, á milli sérfræðinga, (Forseti hringir.) á milli þeirra sem eru að vinna verk á ólíkum sviðum. Mig langar til að spyrja hv. þingmann: Hvernig sér hv. þingmaður að Íslandsdeildin, og kannski ríkisstjórnin, (Forseti hringir.) geti beitt sér í þessu máli?