norrænt samstarf 2025.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur kærlega fyrir hennar ræðu og flutning hennar á þessari skýrslu. Mig langar að fá hana kannski til að varpa ljósi á þær umræður sem hafa átt sér stað meðal þingmanna Norðurlandaráðs varðandi öryggis- og varnarmál af því að það er rétt sem hv. þingmaður segir að það hefur orðið mikil breyting á stuttum tíma. Áður voru öryggis- og varnarmál eitthvað sem var örugglega lítið rætt en nú er þetta orðið eitthvað sem ég finn — þó að ég eigi ekki sæti í Norðurlandaráði þá tek ég þátt í alls konar alþjóðlegu samstarfi sem formaður utanríkismálanefndar og hitti þá gjarnan kollega mína í svokölluðum NB8-hóp, bæði á vettvangi ESB- og EES-samstarfs og líka á vettvangi ÖSE-þingsins og þar finnur maður að þessi umræða er orðin allt önnur og meiri. Til dæmis var sú staðreynd rædd, síðast þegar formenn NB8-ríkja hittust í Danmörku í tengslum við sameiginlegan fund um varnar- og öryggismál, að nokkur NB8-ríki, þar með talið Finnland ásamt Eystrasaltsríkjunum, hafa ákveðið að segja sig frá Ottawa-samningnum, alþjóðasamningi um bann við útbreiðslu jarðsprengja. Þetta er kannski ekki umræða sem við erum vön að eiga á vettvangi Norðurlandaráðs og er kannski eins og köld vatnsgusa framan í okkur en líka umræða sem er nauðsynlegt að taka. Að sama skapi er fólk að ræða praktíska hluti eins og sameiginleg innkaup á varnartengdum búnaði. Mig langaði að gefa þingmanninum tækifæri á að varpa aðeins ljósi á þær umræður sem eiga sér stað á vettvangi Norðurlandaráðs, ekki bara hinar formlegu umræður heldur líka milli þingmanna frá ólíkum löndum þegar kemur að samstarfi um varnar- og öryggismál.