157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

norrænt samstarf 2025.

421. mál
[12:34]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar svar. Mig langar þá, fyrir utan að gefa henni færi á að svara spurningum í fyrra andsvari líka, að spyrja hana varðandi þann lið í skýrslunni sem snýr að ársfundi þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins. Eins og ég hef sagt áður í ræðum hér þá tek ég virkan þátt í samstarfi NB8-ríkjanna, sem eru norrænu ríkin og Eystrasaltsríkin, og tel að það sé samstarf sem við eigum að styrkja og virkja enn betur. Mig langar að vita hvort hún gæti deilt upplifun sinni af ársfundi Eystrasaltsráðsins, gefa henni færi á því, og enn fremur vil ég velta því upp hvort okkar aðkoma að þessu samstarfi í dag, með veru Íslands í Norðurlandaráði, sé viðunandi eða hvort það sé tilefni til að auka okkar þátttöku í þingi Eystrasaltssvæðisins.