157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

norrænt samstarf 2025.

421. mál
[12:35]
Horfa

Frsm. ÍNR (Dagbjört Hákonardóttir) (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir seinni spurningu. Já, ég held það séu sóknarfæri fyrir okkur að gera okkur meira gildandi í samstarfi þingmanna ríkja sem eiga landamæri við Eystrasaltið sem og víðar. Upplifun mín af þessum fundi var góð. Reyndar kom aftur Alexander Stubb og hélt ræðu. Áherslan var auðvitað mjög mikið á ógnir sem stafa frá Rússlandi í tengslum við skuggaflotann sem þar siglir um. Við vitum að það gefur fyrirheit um það sem mögulega kann að gerast á þeim hafsvæðum sem umlykja okkur. Áherslan var líka á umhverfismál og sjálfstæða umhverfisógn, við höfum auðvitað margt fram að færa þar í tengslum við jarðhita og fleira. Þannig að, já, ég held að við eigum mikil sóknarfæri þar og ég myndi fagna því ef þingheimur myndi leggjast á sveif með Íslandsdeildinni í að halda uppi formennsku Íslands sem mun eiga sér stað 2026–2027.

Varðandi nánara samstarf Norðurlandanna á sviði öryggis- og varnarmála vil ég fagna því sérstaklega að formaður utanríkismálanefndar veki sérstaklega máls á því hér í dag. Það var lagt til af hálfu Norðurlandaráðsþingsins á þingi sínu í Reykjavík 2024 að stofnuð yrði sameiginleg norræn nefnd um öryggis- og varnarmál. Það hefur því miður ekki verið tekið upp af hálfu ríkisstjórnanna, þ.e. ríkisstjórnir Norðurlandaþjóða hafa hafnað stofnun slíkrar nefndar. En forsætisnefnd Norðurlandaráðs hefur beint spurningum til ríkisstjórnanna um hvernig því líður að þétta þetta samstarf og hvort ekki hafi skapast nýjar forsendur fyrir stofnun nefndarinnar. Við vitum t.d. að Jens Stoltenberg, núverandi fjármálaráðherra Noregs, átti að rita skýrslu um sameiginlega öryggis- og varnarmálastefnu á Norðurlöndunum en þurfti frá að hverfa (Forseti hringir.) í ljósi þess að hann gegnir nú stöðu í ríkisstjórn Noregs. Ég held að það sé bara mjög mikilvægt að við höldum fast við þetta og veitum þessum ríkisstjórnum aðhald og þá ekki síst þessari sem hér situr um það (Forseti hringir.) að nú sé kominn tími á að formgera þetta samstarf. Ég myndi fagna því ef formaður utanríkismálanefndar, hv. þm. Pawel Bartoszek, myndi styðja okkur í þeirri umræðu.

(Forseti (HildS): Forseti biður þingmenn um að virða ræðutíma.)