157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

norrænt samstarf 2025.

421. mál
[12:38]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka formanni Íslandsdeildar Norðurlandaráðs fyrir framsöguna og þessa skýrslu sem við erum að fjalla um hér í dag. Ég er einn af meðlimum Íslandsdeildar Norðurlandaráðs og tók þar sæti fyrir um ári síðan og viðurkenni að þegar ég hóf störf þar hafði ég takmarkaða innsýn inn í starfsemi Norðurlandaráðs og tengdi þetta kannski fyrst og fremst við bókmenntaverðlaun. Það var kannski snertiflötur sem almenningur heyrir reglulega um í fjölmiðlum. En á þessu eina ári hefur maður náð að setja sig vel inn í málin og kynnast hvernig þetta samstarf nýtist okkur íslensku þingmönnunum, hvort sem við erum að horfa til tengslamyndunar eða til málefna sem við viljum beita okkur fyrir á alþjóðavettvangi eða hér innan lands.

Í svona samnorrænu samstarfi er verið að velta upp þessum sameiginlegu áskorunum og tækifærum, hvernig við getum sótt fram í hverju landi fyrir sig en líka saman sem sterk, samkeppnishæf Norðurlönd. Ég fékk einnig það tækifæri að verða formaður þekkingar- og menningarnefndar Norðurlandaráðs og vil nýta tækifærið hér í þessari ræðu til að beina því til Alþingis að ég vil gjarnan vinna í nánu samstarfi við þingheim allan varðandi hvernig við getum nýtt nefndarstarf og Norðurlandaráð til að lyfta upp þeim málefnum sem við viljum lyfta upp í norrænu samstarfi. Það er heilmikið af verkefnum hér á Íslandi sem eru framúrskarandi á heimsvísu, hvort sem við erum að tala um skólamál, æskulýðsmál, íþróttamál eða menningarmálin, og við höfum fullt fram að færa. En svo eru líka áskoranir hér sem snúa að t.d. tungumálinu okkar, fjölmiðlaumhverfinu, vanlíðan ungmenna og aukinni ofbeldismenningu þar sem við gætum nýtt þennan vettvang til að vinna saman með Norðurlöndunum að því hvernig við getum tæklað þessar áskoranir.

Ég vil líka nýta tækifærið og þakka öllum meðlimum Íslandsdeildar Norðurlandaráðs fyrir öflugt samstarf á þessu ári. Það er gaman að kynnast þingmönnum á þessu alþjóðasviði þar sem við erum öll saman í liði og erum að beita okkur sameiginlega fyrir rödd Íslands á þessum vettvangi. Það hefur verið mjög gjöfult samstarf. Einnig vil ég þakka starfsmanni Íslandsdeildarinnar, Helga Þorsteinssyni, fyrir afar gott starf á árinu.

Ég vil líka vekja sérstaklega athygli á fylgiskjali II með skýrslunni, sem er formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja í Norðurlandaráði fyrir árið 2026. Þetta eru í rauninni þau áherslumál sem Norðurlandaráð mun beita sér fyrir á árinu fram undan og ég tel að það sé margt þarna þar sem við getum bæði haft eitthvað fram að færa en líka sótt þekkingu hingað heim. Í þessum áherslum er náttúrlega höfuðáhersla lögð á lipurt norrænt samstarf, á þessum óvissutímum, og öryggis- og varnarmálin, viðnámsþróttinn og hvernig við getum saman sem Norðurlönd eflt t.d. borgaralega innviði til að geta tekist á við fjölþáttaógnir og hvernig við erum sterkari, hvort sem við erum að horfa á flutningsleiðir, raforkukerfi eða þessa grunninnviði landanna sem þurfa að vera sterkir á óvissutímum. Ég hlakka til að reyna að efla þetta samstarf á árinu og sjá hvernig við getum unnið saman að þessu markmiði. Ég vil lyfta sérstaklega hlut menntunar og menningar í þessari áætlun og að það sé sett í samhengi, eins og svo margt á þessum tímum, eins og ég kom inn á í ræðu áðan, við viðbragðsáætlun.

Smá hliðarsaga: Á einum fundi þekkingar- og menningarnefndarinnar komu fulltrúar norsku Friluftsliv-samtakanna, útivistar- og útilífssamtaka, og voru að kynna öflugt frístunda- og tómstundastarf sem þau hafa staðið fyrir í áratugi sem snýr að gönguskíðum og að gista í tjaldi, útieldun og fleiru. Þetta hafa hingað til, þegar ég hef setið þessar kynningar, í rauninni verið bara svolítið krúttlegar kynningar um öflugt starf sem að sjálfsögðu valdeflir ungt fólk og gefur því tækifæri til að stunda útivist og heilbrigt líferni. En þarna var það komið í búning viðnámsþróttar og t.d. í þeim löndum þar sem er herskylda og ungmenni fara í herskyldu þegar þau eru á unglingsárum að tryggja að þau viðhaldi þjálfun sinni með því að vera virkir borgarar sem stunda útivist, fjallamennsku, gista undir berum himni, kunna að bregðast við með lágmarksaðbúnað þannig að það er allt komið í þennan búning viðnámsþróttar og það er alveg skiljanlegt í stöðu heimsmálanna. En fyrir okkur saklausu Íslendingana viðurkenni ég að þetta var smá sjokk og áhugaverð nálgun þegar ég heyrði þetta.

Í þessari formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja er sérstaklega horft til þess í menningu og almennri menntun hversu miklu máli hún skiptir fyrir norræn samfélög. Ég hef gert það hingað til og mun halda áfram að beita mér fyrir því að hættan þegar kemur að t.d. fjármagni og forgangsröðun samfélaganna er að þeir fjármunir sem áður runnu í menningu, í íþrótta- og tómstundastarf, í það að fjárfesta í samfélaginu okkar, renni allir í öryggis- og varnarmálin. Því er mikilvægt að lyfta því upp að sjálfsögðu að vera með öflug ungmenni sem geta sótt sér menntun, stundað íþróttir og tómstundastarf sem byggir upp þetta samfélagslega traust og þessi gildi sem við erum að reyna að verja, lýðræðið, samstöðuna, að við gleymum ekki að fjárfesta sérstaklega í þessu starfi og standa vörð um það.

Finnland talar einnig um það að styðja í sinni formennskutíð samnorræn verkefni sem snúa að því að bæta líðan barna og ungmenna og stuðla að bættri menntun og símenntun. Og þess held ég að við þurfum einmitt að horfa til. Við sjáum því miður of mikið af rannsóknum sem sýna að íslenskum ungmennum er sífellt farið að líða verr, ofbeldi er að aukast og brottfall úr skólakerfinu einnig. Því þurfum við hér heima — og það var ánægjulegt í gær að skrifað var undir samstarfssamning milli menntamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar þar sem er verið að fjárfesta einmitt í frístundastarfinu fyrir 16–25 ára ungmenni í Breiðholti þar sem markmiðið er einmitt að auka vellíðan, að fólk finni sína fjöl og finni góðan tilgang í því að sækja sér síðan einhverja góða menntun og taka virkan þátt í samfélaginu okkar, fari ekki út af brautinni þótt það hætti kannski tímabundið í skóla. Þetta skiptir okkur miklu máli.

Einnig er fjallað um hvernig við þurfum að vinna saman að því að takast á í þessum nýja heimi þar sem upplýsingaóreiða er sífellt meiri, þar sem gervigreindin er farin að taka sífellt meira pláss í okkar lífi. Hvernig ætlum við að ala upp börnin okkar í þessum heimi? Hvernig getum við eflt fjölmiðlafræðslu og þekkingu á gervigreindinni til að snúa þessu nýja verkfæri í tækifæri í stað ógnar? Ég hlakka til að taka þátt í þessu starfi líka.

Svo eru fleiri þættir undir þessari áætlun sem er hægt að glöggva sig á undir fylgiskjali II, eins og ég kom inn á áðan, en að lokum vil ég í rauninni aftur þakka fyrir öflugt samstarf í Íslandsdeildinni og á þessum vettvangi. Ég óska eftir öflugu samstarfi hér á Alþingi Íslendinga og bið þingheim allan að koma með góðar hugmyndir og áskoranir sem við getum beitt okkur fyrir á vettvangi Norðurlandaráðs til að efla íslenskt samfélag.