157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

Vestnorræna ráðið 2025.

406. mál
[13:04]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gnarr fyrir mjög góða yfirferð. Ég er ekki frá því að þessi yfirferð hafi verið betri en á þriðjudag. Takk fyrir. Ég vil líka þakka hv. þingmanni fyrir mjög gott samstarf í Vestnorræna ráðinu. Ég verð að segja að mér þykir það hafa verið ein mín mesta gæfa hér á þinginu að hafa fengið sæti í þessari nefnd því að þetta er alveg ótrúlega dýrmætt samstarf sem við erum að fjalla um þarna á milli Færeyja og Grænlands. Mér hefur þótt það vera bæði áhugavert og skemmtilegt að hitta þingmenn frá þessum löndum og ég sé svo ofboðslega mörg tækifæri til að efla þetta samstarf enn betur, eins og hv. þingmaður kom inn á, bæði í gegnum menningu og viðskipti og líka félagsleg kerfi. Á nýlokinni þemaráðstefnu í Færeyjum, sem er ekki til umfjöllunar í þessari skýrslu, hún kemur næst, vorum við einmitt mikið að ræða það hvernig við gætum eflt samstarfið enn frekar á milli þessara funda til að koma meiri krafti í starfið og svoleiðis. Ég vil nýta þetta tækifæri til að hvetja hv. þingmann til dáða í þeim efnum, sem formaður ráðsins. Ég þakka enn og aftur fyrir gott samstarf.