Vestnorræna ráðið 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka sömuleiðis hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir góðar kveðjur og tek undir orð þingmannsins: Þetta er búið að vera einstaklega gefandi og það er líka nokkuð sem fólk skilur og skynjar sem tekur þátt í svona starfi. Ég hef stundum sagt frá því í fyrsta skipti þegar ég kom til Færeyja, sem hefur verið 2010 eða 2011, að ég fékk eiginlega kúltúrsjokk, að ég skyldi ekki hafa komið þarna áður því að mér fannst ég vera að koma á stað á Íslandi sem ég vissi ekki að væri til. Það var einhvern veginn tilfinning mín. Svo er sagt að þú vitir hverjir vinir þínir eru þegar eitthvað bjátar á, hverjir eru sannir vinir þegar eitthvað bjátar á. Ég er mjög stoltur af okkar starfi og stoltur af Alþingi og hvernig við höfum staðið með vinaþjóð okkar, Grænlendingum, í gegnum þær raunir sem grænlenska þjóðin er búin að vera að ganga í gegnum, að geta verið til staðar. Mér fannst það bara mjög gefandi og það styrkir og bætir og treystir. — Takk.