Vestnorræna ráðið 2025.
Virðulegi forseti. Já, ég tek í raun undir bæði þau atriði sem hv. þingmaður nefnir hér, annars vegar að það að koma til þessara landa — ég upplifði pínu skömm yfir því að ég væri að koma í fyrsta skipti til Grænlands og í fyrsta skipti til Færeyja, því að Grænlendingar og Færeyingar hafa margoft komið til Íslands. Ég held að við þurfum að einhvern veginn líka að hvetja landsmenn til dáða til að fara sjaldnar í sólina, til Tene, og oftar til nágranna okkar þarna, af því að það er algjörlega einstök náttúrufegurð á báðum stöðum. Ég held að við gætum byggt upp mun sterkari vinatengsl á milli þessara þriggja þjóða.
Talandi um að standa vel saman þá finnst mér ekki hægt að tala um það hér án þess að nefna hvað Færeyingar hafa líka verið góðir grannar gagnvart okkur Íslendingum þegar við höfum átt um sárt að binda. Ég held einmitt að á þessum tímum, þegar Grænlendingar eru að ganga í gegnum sínar raunir, ættum við að reyna að finna sem flestar leiðir til að verða besta útgáfa af nágranna sem hugsast getur.