157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

Vestnorræna ráðið 2025.

406. mál
[13:09]
Horfa

Frsm. ÍVN (Jón Gnarr) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég tek undir hvert orð. Þetta er allt saman algjörlega magnað. Varðandi samgöngurnar þá veit ég að þetta hefur oftar en ekki haft með kostnað að gera. Það er bara miklu ódýrara að fljúga til Kanaríeyja heldur en til Færeyja. Það er náttúrlega eitthvað til að skoða. Við erum náttúrlega alltaf einhvern veginn að reyna að velta fyrir okkur hvernig megi styrkja tengsl, bæði samgöngur og líka viðskiptatengsl, sem eru líka hluti af samgöngunum. Svo eru náttúrlega óvissutímar. Það er ólga og óvissa þannig að við erum líka bara að standa af okkur ákveðið veður. En ég held að við séum með mjög mikinn efnivið til að byggja á og munum gera það, held ég. Ég finn bara einbeittan vilja til þess frá öllum aðilum.