Vestnorræna ráðið 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Jóni Gnarr fyrir sína góðu yfirferð á skýrslu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins. Ég fagna þessari skýrslu og ekki einungis sem formsatriði eða árlegri yfirferð heldur vegna þess að hún minnir okkur á eitthvað sem skiptir raunverulegu máli. Hún minnir okkur á að samstarf smárra ríkja byggt á sameiginlegri reynslu, landfræðilegum aðstæðum og menningu er ekki jaðarfyrirbæri heldur lykilatriði í alþjóðlegu samhengi samtímans. Vestnorræna ráðið er, líkt og hv. þm. Jón Gnarr reifaði hér á undan, samstarfsvettvangur þingmanna frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi; þremur samfélögum sem eiga það sameiginlegt að vera fámenn, dreifð og staðsett á Norður-Atlantshafi og háð sterkum innviðum, öflugum samskiptum og gagnkvæmum skilningi. Þetta eru samfélög sem þekkja bæði tækifærin og áskoranirnar sem felast í því að vera lítil þjóð í stórum heimi. Skýrslan sem hér er lögð fram dregur saman starf ráðsins á seinasta ári. Hún fjallar um fundi, ályktanir og stefnumótun en undir yfirborðinu er stærri saga um það hvernig við vinnum saman, hvernig við tökum sameiginlegum áskorunum alvarlega og hvernig við byggjum traust þvert á landamæri.
Eitt af því sem mér þykir standa upp úr í þessari skýrslu er áherslan á samgöngur, innviði og öryggi og það er engin tilviljun. Fyrir vestnorræn samfélög eru samgöngur ekki bara spurning um þægindi heldur alger lífæð. Þær tengja fólk við heilbrigðisþjónustu, við menntun, atvinnu og fjölskyldu. Innviðir eins og fjarskipti, sæstrengir og orkukerfi eru mikilvægur grundvöllur þess að svona samfélög geti þrifist. Á ársfundi ráðsins voru samþykktar ályktanir um öryggis- og varnarmál á Norður-Atlantshafi og um öryggi mikilvægra innviða. Það er mikilvægt að þingmenn þessara landa tali skýrt saman um þessi mál, ekki af ótta heldur af ábyrgð líkt og hefur verið gert, og einmitt ekki til að herða línur heldur til að tryggja stöðugleika, seiglu og sjálfbærni.
Í heimi þar sem alþjóðlegt öryggisumhverfi hefur breyst hratt, þar sem loftslagsbreytingar, tæknibreytingar og pólitísk spenna hefur mikil áhrif, skiptir samstaða miklu máli. Vestnorræna ráðið er einmitt dæmi um slíka samstöðu í verki. Þegar við ræðum um norrænt samstarf gleymist stundum að þetta snýst ekki bara um stórar yfirlýsingar og formlegar stofnanir eins og það getur virst út á við. Þetta snýst um tengsl, um það að fólk sem býr við svipaðar aðstæður tali saman, hlusti hvert á annað og læri hvert af öðru. Vestnorrænt samstarf er hluti af stærra norrænu samhengi. Það tengist öðrum samstarfsvettvöngum á Norður-Atlantshafssvæðinu og vil ég t.d. nefna NORA-samstarfið þar sem áhersla er lögð á nýsköpun, menningu, atvinnuþróun og sjálfbæra framtíð í dreifðum samfélögum. Allir þessir vettvangar styðja hver annan, þeir skapa rými fyrir hugmyndir, verkefni og lausnir sem hefðu kannski ekki orðið til innan landamæra eins ríkis. En það er einmitt styrkur norræns samstarfs að það byggir ekki á samkeppni heldur samstöðu.
Við megum ekki taka norrænu og vestnorrænu samstarfi sem sjálfsögðum hlut. Það þarf stöðugt að rækta það og endurnýja. Skýrslan sem hér er lögð fram er hluti af því ferli. Hún er vitnisburður um vinnu sem þegar er unnin og áminning um að halda áfram. Í heimi þar sem stórveldi keppa um áhrif, auðlindir og athygli hafa lítil samfélög allt að vinna með því að standa saman, ekki til að loka sig af heldur til að taka þátt á eigin forsendum, til að verja það sem skiptir máli, menningu, samfélög og lífsgæði fólks.
Ég fagna þessari skýrslu. Ég fagna starfi Vestnorræna ráðsins og ég fagna norrænu samstarfi í allri sinni fjölbreytni. Þetta er samstarf sem byggir á trausti, virðingu og sameiginlegri framtíðarsýn og það er samstarf sem við eigum og getum verið stolt af.