157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

Vestnorræna ráðið 2025.

406. mál
[13:16]
Horfa

Frsm. ÍVN (Jón Gnarr) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Evu Pandoru Baldursdóttur kærlega fyrir hennar orð og tek heils hugar undir það sem hún sagði. Saga þessara landa er náttúrlega samofin og tengd svo mörgum ólíkum þráðum sem er í rauninni óþarfi að slíta í sundur. Þetta er sameiginleg saga Íslands og Grænlands sem spannar 1000 ár. Eins og ég hef bent á erum við Íslendingar lítil þjóð í þessu norræna samhengi gagnvart Norðurlöndunum en við varðveitum sögu Norðurlanda. Á Gotlandi er pínulítill steinn með rúnaristum þar sem kemur fyrir orðið Ísland. Það er samkvæmt mínum upplýsingum langelsta varðveitta ritaða heimildin þar sem orðið Ísland kemur fyrir og það er á Gotlandi. Við höfum mikið að byggja og til mikils að vinna.