Vestnorræna ráðið 2025.
Virðulegi forseti. Já, ég tók eftir þessu hjá hæstv. forseta af því að sá sem hér stendur langaði einmitt að fara í andsvör við nokkra af skýrsluflytjendum en var meinað það, það væri augljóslega um að ræða skýrt málþóf hv. formanns utanríkismálanefndar að ætla sér að ræða við skýrsluflytjendur um efni alþjóðastarfs. Það má auðvitað velta fyrir sér skynsemi allrar þessarar reglusetningar, en gott vel, reglurnar eru til þess að gera leikinn skemmtilegri, ætli það sé ekki tilfellið. En mig langar að koma hérna í stutta ræðu. Ég tek undir með hv. þm. Jóni Gnarr að saga þessara þriggja þjóða sem koma að Vestnorræna ráðinu er auðvitað samofin og margt sem þar má segja.
Mig langaði að deila því með þingheimi að ég hlustaði nýlega á mjög athyglisvert hlaðvarp um Grænlandsferð Friðþjófs Nansens sem gekk manna fyrstur yfir Grænlandsjökul á skíðum seint á 19. öld. Það sem mér þótti kannski áhugavert við að hlusta á það hlaðvarp var að Friðþjófur Nansen kom hingað til Íslands í aðdraganda þessarar ferðar, kom til Keflavíkur og lagði við höfnina í fjóra eða sex tíma, það var sá tími sem hann stoppaði hér. Ástæðan var einfaldlega sú að hér var afar lítið að finna, það var ekki almennileg aðstaða til að taka á móti skipum, hafnaraðstaða var svo bágborin að hér var ekki einu sinni hægt að stoppa til að taka vistir. Þetta segir okkur að saga þessara landa eigi margt sameiginlegt, sérstaklega ef við lítum svolítið langt aftur í tímann.
Maður sér það líka á þeim áherslum sem öll þessi lönd leggja á samgöngumál í sinni pólitík. Staðreyndin er sú að helstu innviðir voru gríðarlega vanfjármagnaðir í öllum þessum löndum, t.d. samgönguinnviðir. Hér í Reykjavík var engin höfn fram á 20. öld sem kallast mátti höfn á meðan á meginlandinu, í Kaupmannahöfn, voru sannarlega hafnir og um Danaveldi allt. Ef við tökum annað dæmi þá voru auðvitað engar lestarsamgöngur hér á Íslandi. Það voru hugmyndir um að koma slíkum á og það er hægt að segja að allt þetta sé einungis út af fámenninu og fjarlægðinni. Ég held að það sé reyndar út af því síðarnefnda því að ef við tökum t.d. Borgundarhólm, sem var þá hluti af Danmörku, þá var þar lögð járnbraut seint á 19. öldinni og sú járnbraut tengdi ekki saman stærri byggðarlög heldur en t.d. voru annars vegar Reykjavík og Suðurlandsundirlendið á þeim tíma.
Sömu sögu er að segja þegar litið er til annarra vestnorrænna ríkja, þar voru innviðir lengi miklu síðri heldur en í konungsríkinu Danmörku eða á meginlandinu sjálfu. Maður sér það kannski enn þá, maður sér auðvitað hversu þung umræðan er um samgöngumál bæði á Grænlandi og hér og í Færeyjum. Það er kannski að einhverju leyti út af því að þessi ríki búa því miður við ákveðna innviðaskuld vegna þess að það var ekki hugað nægilega vel að fjárfestingum í grunninnviðum svo öldum skipti. Á þann hátt má kannski sjá hvers vegna þessi mál eru svo fyrirferðarmikil.
Það er nauðsynlegt fyrir okkur að hlúa vel að þessu samstarfi, sérstaklega á þessum tímum. Við þekkjum öll umræðuna um Grænland og við vitum að við stöndum öll baki grænlensku þjóðinni og hennar sjálfsákvörðunarrétti. Í þessu samhengi er mikilvægt að hlúa að þessu samstarfi og efla á öllum sviðum. Ég vil í því samhengi nefna að ég veit að það hefur verið samstarfsverkefni þar sem börn í framhaldsskóla í Færeyjum, Danmörku, Íslandi og Grænlandi fara saman gegnum menntaskólaprógramm þar sem þau deila sem sagt önn eða ári í hverju af þessum löndum fyrir sig og hljóta þannig framhaldsskólagráðu eftir það. Því miður veit ég að sá íslenski framhaldsskóli sem hefur tekið þátt í þessu verkefni hingað til hyggst draga sig út úr því, sem gerir að verkum að við munum þá ekki lengur taka þátt í þessum anga vestnorræns menntasamstarfs.
Ég held að slíkt samstarf sé nokkuð mikilvægt og mér finnst það íhugunarefni á þessum tíma hvort það séu endilega rétt skilaboð að senda, að við drögum okkur út úr þessu samstarfi sem er mikilvægt framlag okkar til að efla tengsl milli ungs fólks á Vestur-Norðurlöndum. Ég skil það eftir hérna í þingsal hvort það væri tilefni til þess að gera tilraun til þess að finna annan íslenskan framhaldsskóla sem gæti tekið þátt í að halda þessu verkefni áfram. Það er hægt að skrifa ályktanir og taka þátt í ráðstefnum og málfundum en stundum getur það að skapa svona persónuleg tengsl milli fólks á mótandi árum, sem lifa svo áratugum skipti, verið eitthvað sem skiptir líka miklu máli.
Forseti. Ég þakka fyrir góða umræðu um þessa skýrslu og hef lokið máli mínu.