norðurskautsmál 2025.
Virðulegur forseti. Á þskj. 686, 409. mál, liggur fyrir ársskýrsla þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál og mun ég sem formaður Íslandsdeildarinnar í stuttu máli gefa þingheimi kynningu á helstu málum sem voru í brennidepli á liðnu ári. Ársskýrsla Íslandsdeildar fyrir árið 2025 gerir störfum þingmannanefndarinnar ítarleg skil. Ég mun því aðeins stikla á stóru en vísa að öðru leyti til skýrslunnar sem mælt er fyrir.
Þingmannaráðstefnan um norðurskautsmál er umræðuvettvangur þingmanna frá ríkjum við norðurskautið sem og fulltrúa ríkisstjórna, háskólastofnana og félagasamtaka sem láta sig málefni norðursins varða. Fyrsta ráðstefna þingmanna og fulltrúa norðurskautssvæða var einmitt haldin í Reykjavík árið 1993 og var hún undanfari þingmannanefndar um norðurskautsmál sem formlega var sett á laggirnar árið 1994.
Meginviðfangsefni nefndarinnar eru að skipuleggja þingmannaráðstefnuna og fylgja eftir samþykktum hennar, sem og að fylgjast grannt með störfum Norðurskautsráðsins. Þingmannanefndin fundar að jafnaði tvisvar til þrisvar á ári og einn þingmaður frá hverju aðildarríki situr í nefndinni. Þjóðþing Bandaríkjanna, Kanada, Rússlands og Norðurlanda eiga fulltrúa í nefndinni og auk þess á Evrópuþingið fastan fulltrúa. Nokkur samtök þingmanna, frumbyggja og þjóðarbrota á norðurslóðum eiga fasta áheyrnarfulltrúa í nefndinni með rétt til þátttöku í umræðum, svo sem frá Norðurlandaráði og Vestnorræna ráðinu.
Almennt má segja að helstu verkefni í norðurskautssamstarfi lúti að sjálfbærri þróun og umhverfismálum. Einnig hefur sérstök áhersla verið lögð á varðveislu menningararfleifðar og lífshátta þeirra þjóðflokka sem byggja landsvæðin við norðurskaut, sem og aukna efnahagslega og félagslega velferð íbúa norðursins. Einnig er rík áhersla lögð á að halda norðurslóðum sem lágspennusvæði í alþjóðasamskiptum. Þá hefur þingmannanefndin á undanförnum árum lagt sérstakan metnað í að eiga frumkvæði að margs konar verkefnum sem hægt er að leggja fyrir Norðurskautsráðið til framkvæmdar.
Jafnvel þótt samstarf norðurskautsríkja eigi sér fremur stutta sögu hefur það leitt til margvíslegra sameiginlegra verkefna og stofnana. Eftirlit með og mat á umhverfi norðurskautssvæðanna hefur frá byrjun verið forgangsverkefni ráðsins. Fjölmargar vandaðar vísindarannsóknir hafa verið unnar á vegum vinnuhópa ráðsins, m.a. um mengunarhættu, áhrif mengunar á vistkerfi norðurslóða og varðveislu líffræðilegs fjölbreytileika. Má í þessu sambandi nefna tvær mikilvægar vísindastofnanir Norðurskautsráðsins, CAFF og PAME sem eru einmitt staðsettar á Akureyri hér á Íslandi. Ég þreytist ekki á að minnast á mikilvægi og hlutverk Akureyrar og þeirra stofnana sem þar starfa að málefnum norðurslóða.
Á árinu 2025 áttu eftirfarandi aðalmenn sæti í Íslandsdeild: Sá sem hér stendur er formaður, frá þingflokki Viðreisnar, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir er varaformaður, frá þingflokki Miðflokks, og Ragna Sigurðardóttir, þingflokki Samfylkingar. Varamenn eru Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingflokki Samfylkingar, Jón Gnarr, þingflokki Viðreisnar, og Þorgrímur Sigmundsson, þingflokki Miðflokks. Ása Berglind tók sæti Rögnu sem aðalmaður í nefndinni frá 5. maí vegna fæðingarorlofs. Ritari Íslandsdeildar er Arna Gerður Bang. Mig langar að nota tækifærið hér til að þakka fyrir gott samstarf í nefndinni og þá sérstaklega Örnu Bang, ritara, fyrir hennar mikilvægu vinnu og stuðning.
Herra forseti. Á vettvangi þingmannanefndarinnar bar á árinu 2025 hæst umræðu um loftslagsbreytingar, réttindi frumbyggja, samskipti Grænlands og Bandaríkjanna og málefni Norðurskautsráðsins. Þá var fulltrúum tíðrætt um öryggismál á norðurslóðum og starf þingmannanefndarinnar án þátttöku Rússa eftir ólögmæta innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022. Hinn 8. mars 2022 sendi þingmannanefndin frá sér yfirlýsingu varðandi stríðið í Úkraínu þar sem kemur fram að friðsamlegt samstarf á norðurslóðum sé nauðsynleg forsenda fyrir starfi þingmannanefndar um norðurskautsmál. Í framhaldinu gerði þingmannanefndin tímabundið hlé á starfi sínu en fylgist áfram náið með þróun mála á svæðinu, með friðsamlega hagsmuni ríkja og íbúa norðurslóða í huga. Nefndin komst síðar að þeirri niðurstöðu að samkvæmt starfsreglum nefndarinnar gætu nefndarmenn fundað að eigin vild án þátttöku Rússlands. Þá vil ég árétta að nefndarmenn voru sammála um að þrátt fyrir stríðið og afleiðingar þess væri nauðsynlegt að halda áfram að vinna að mikilvægum málum á svæðinu eins og baráttunni gegn loftslagsbreytingum, bættum lífskjörum og réttindum frumbyggja og sjálfbærri þróun. Því var tekin ákvörðun um að halda starfi þingmannanefndarinnar áfram án þátttöku Rússa og hélt nefndin ráðstefnu og tvo fundi á árinu 2024 og tvo fundi á árinu 2025.
Samskipti Grænlands og Bandaríkjanna voru í brennidepli á árinu í ljósi þeirra ummæla forseta Bandaríkjanna, Donalds Trumps, að hann vilji að Grænland verði hluti af Bandaríkjunum. Grænlenska þingkonan og formaður nefndarinnar, Aaja Chemnitz, ítrekaði í sínu máli að ákvörðun um framtíð Grænlands lægi alfarið hjá Grænlendingum. Þeir vildu hvorki vera Bandaríkjamenn né Danir heldur Grænlendingar. Hún lagði jafnframt áherslu á að yfirvöld á Grænlandi vilji efla efnahagsleg tækifæri eins og nýtingu auðlinda og ferðamennsku. Jafnframt sendu Aaja Chemnitz og Lisa Murkowski, öldungadeildarþingmaður frá Bandaríkjunum og varaformaður nefndarinnar, frá sér sameiginlega yfirlýsingu um samstarf Grænlands og Bandaríkjanna þar sem lögð er áhersla á samstarf en ekki eignarhald annars aðilans.
Þá hélt Alexandra Anstrell, formaður sænsku landsdeildarinnar og skýrsluhöfundur nefndarinnar um loftslagsmál, erindi um örplast á norðurslóðum. Þar kom m.a. fram að sænska þingið hefði óskað eftir samanburði á ríkjum Evrópusambandsins og að Norðurlöndin stæðu almennt vel í slíkum samanburði, einnig Ísland og Noregur sem aðilar að EES-samningnum.
Þá var fulltrúum tíðrætt um réttindi frumbyggja og jafnréttismál á árinu og hélt Lisa Murkowski innlegg um alvarleg mistök bandarískra stjórnvalda gagnvart frumbyggjakonum þar sem opinbera kerfið hafi brugðist ítrekað og ekki sinnt ábyrgð sinni með fullnægjandi hætti. Hún undirstrikaði mikilvægi þess að horfast í augu við fortíðina og tryggja ábyrgð, sannleika og réttlæti fyrir aðstandendur og samfélög frumbyggja.
Mig langar í ræðu minni vekja sérstaka athygli á því að undirritaðar voru tvær viljayfirlýsingar á árinu, annars vegar milli Háskóla norðurslóða og þingmannanefndarinnar og hins vegar milli samráðsvettvangs sveitarstjórna á norðurslóðum og nefndarinnar.
Formennska í Norðurskautsráðinu var ofarlega á dagskrá vegna breyttra aðstæðna eftir innrás Rússa í Úkraínu. Formennskutíð Noregs lauk í maí 2025 og kynnti formaður hennar, Morten Høglund, niðurstöður hennar fyrir nefndinni. Hann lagði áherslu á að Norðurskautsráðið hafi verið farsæll vettvangur norðurslóðamála í 25 ár. Hins vegar hefði staðan orðið erfið eftir ólöglega innrás Rússlands í Úkraínu. Aðildarríki ráðsins náðu þó samkomulagi um fyrirkomulag til að hefja aftur störf á vettvangi vinnuhópa ráðsins undir forystu Noregs, sem legið hafði niðri vegna stríðsins. Nýju viðmiðunarreglurnar byggjast á skriflegum samskiptum og gera vinnuhópunum kleift að halda áfram með verkefni sín. Danska konungsríkið undir forystu Grænlands tók við formennsku af Noregi í maí 2025.
Á árinu fór fram umræða um skipulag og þemu næstu ráðstefnu nefndarinnar sem haldin verður í Fairbanks í Alaska 17.–19. apríl nk, en þau munu tengjast öryggismálum, orkuöryggi og sjálfbærni á norðurslóðum, sem eru að sjálfsögðu mikilvæg verkefni, ekki síst á þessum tímum. Jafnframt var lögð áhersla á þátttöku ungs fólks og frumbyggja í ráðstefnunni.
Af fleiri málum sem voru ofarlega á baugi hjá þingmannanefndinni má nefna rannsóknir og vinnslu auðlinda, mikilvægi þess að efla samstarf, rannsóknir og upplýsingamiðlun á norðurslóðum og orkuöryggi. Að auki fóru fram umræður um stefnur aðildarríkjanna og Evrópusambandsins í málefnum norðurslóða.
Herra forseti. 19.–20. ágúst síðastliðinn var ég sem formaður Íslandsdeildarinnar gestur á ársfundi Vestnorræna ráðsins í Ilulissat á Grænlandi. Þar ávarpaði ég fundinn og kom m.a. inn á að Ísland stæði fast að baki friði og stöðugleika á norðurslóðum. Það krefst skýrrar alþjóðreglusetningar og trúverðugs fælingarmáttar. Þegar við styðjum t.d. Úkraínu í varnarbaráttu sinni erum við jafnframt að verja grunngildi alþjóðalaga, gildi sem tryggja frið og öryggi allra ríkja. Sama gildir þegar við mótmælum brotum á alþjóðalögum annars staðar, hvort sem það er á Gaza eða annars staðar í heiminum.
Þann 23. september síðastliðinn tók ég sem formaður og fyrir okkar hönd þátt í mínum fyrsta fundi þingmannanefndarinnar sem haldin var í Oulu í Finnlandi. Þar greindi ég frá aðkomu minni að málefnum norðurslóða, sem nær allt aftur til þess tíma sem ég starfaði sem bæjarstjóri á Akureyri. Á þeim tíma átti ég í víðtæku samstarfi við sveitarfélög og svæðisbundna aðila á norðurslóðum sem veittu mér gríðarlega dýrmæta innsýn í áskoranir og tækifæri hjá samfélögum á svæðinu. Í máli mínu á fundinum lagði ég áherslu á að staðan á norðurslóðum mótist orðum af auknum pólitískum þrýstingi vegna innrásar Rússlands í Úkraínu sem hafi raskað alþjóðlegu samstarfi. Þrátt fyrir það sé brýnt að halda áfram vinnu á sviði loftslagsmála, réttinda frumbyggja og sjálfbærrar þróunar.
Þá greindi ég frá því að Íslandsdeildin legði sérstaka áherslu á að efla samfélög á norðurslóðum, stuðla að sjálfbærri þróun og tryggja jafnrétti. Jafnframt minnti ég á samstarfssamning nefndarinnar og Vestnorræna ráðsins frá árinu 2022 sem ætlað er að efla tengsl og samstarf, m.a. á sviðum lýðræðis, menningar og sjálfbærrar efnahagsþróunar. Einnig ítrekaði ég, eins og ég hef áður nefnt, að Ísland stæði vörð um frið og stöðugleika á svæðinu á grundvelli alþjóðalaga og réttarríkis. Að lokum undirstrikaði ég mikilvægi þess að vernda náttúruna og að fylgjast með loftslagsbreytingum. Tap líffræðilegrar fjölbreytni og ósjálfbær auðlindanýting eru ekki aðeins umhverfisáskoranir heldur einnig öryggismál sem snerta framtíð norðurslóða.
Virðulegur forseti. Það er ljóst að fjölbreytt verkefni bíða nefndarinnar á árinu 2026 og þess má geta að fyrirhugað er að Alþingi verði í gestgjafahlutverki á árinu 2027 og muni halda fundi þingmannanefndarinnar á Akureyri í október það ár.
Eins og áður sagði er gerð grein fyrir því sem fram fór á fundum nefndarinnar í fylgiskjölum skýrslu þeirrar sem hér er mælt fyrir og vísa ég til hennar varðandi frekari upplýsingar um störf nefndarinnar.
Að svo mæltu læt ég lokið umfjöllun minni um skýrslu Íslandsdeildar þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál fyrir árið 2025.