norðurskautsmál 2025.
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka formanni Íslandsdeildar þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál, hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni, kærlega fyrir. Ég held að hérna sé réttur maður á réttum stað því eins og hann fór yfir í máli sínu á aðkoma hans að norðurslóðamálum rætur að rekja langt aftur í tímann. Ég ætla líka að fagna þeim tíðindum sem hv. þingmaður flutti hér í ræðustól, að til standi að halda fund nefndarinnar á Akureyri næst þegar hann verður haldinn á Íslandi. En mig langar að nýta þennan tíma til að spyrja hv. þingmann út í það hvort hann greini einhvern anda stefnubreytinga í farvatninu hjá þingmannanefndinni. Ég tók nefnilega eftir því sem hv. þingmaður kom inn á í sínu máli, að hjá nefndinni sé lögð rík áhersla á að halda svæðinu sem lágspennusvæði. Þingmaðurinn kom inn á það einmitt líka að hann hafi ítrekað þetta á fundi sem hann sótti hjá þingmannanefndinni í Finnlandi á síðasta ári. Í frásögn af fundinum sem fylgir hér í skýrslunni kemur jafnframt fram að fulltrúi Kanada hafi vísað til þess og fjallað um í sínu máli vaxandi mikilvægi varnar- og öryggismála á norðurslóðum og m.a. fagnaði hann sérstaklega aðild Finnlands og Svíþjóðar að NATO. Svo tek ég eftir því líka í þessari frásögn að á næsta fundi, sem fer fram í Fairbanks í Alaska, sé komið á dagskrá að meginþema umræðunnar á ráðstefnunni eigi m.a. að tengjast varnarmálum. Þetta er það sem mig langar að spyrja þingmanninn að.