157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

norðurskautsmál 2025.

409. mál
[13:42]
Horfa

Sindri S. Kristjánsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni kærlega fyrir skýr og góð svör. Hann kom í andsvari sínu svolítið inn á það sem mig langaði að vita og þetta passar ágætlega saman hjá okkur. Það var annað sem vakti athygli mína við lestur ársskýrslunnar en stefna Íslands í málefnum norðurslóða, sem ég held að fagni fimm ára afmæli núna í vor, er lítillega nefnd þar sem er verið að vísa til þess að einmitt hafi verið fjallað um þessar stefnur ríkjanna í nefndinni. Eins og hv. þingmaður kom inn á þá höfum við bara mjög nýverið samþykkt samhljóða á þinginu nýja stefnu í varnar- og öryggismálum. Mig langar að heyra aðeins hans hugleiðingar um það hvernig þetta er að eiga sér stað og taka umræðuna kannski aðeins dýpra ef kostur er varðandi það hvernig stefna Íslands í málefnum norðurslóða rúmast innan þeirrar umræðu sem er í gangi á þessum vettvangi núna, kannski sérstaklega með tilliti til þess að einn af aðalpunktum stefnunnar er að vinna gegn hvers konar hervæðingu norðurslóða.