norðurskautsmál 2025.
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á að þakka forseta í þessari umræðu fyrir að hafa sýnt ákveðinn sveigjanleika til að bæta umræðuna og leyft andsvör aðila í sama flokki því mér fannst það vera til bóta og ég þakka forseta fyrir það. En ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mikið. Mig langaði bara rétt til að koma hér upp og þakka hv. formanni nefndarinnar fyrir hans vinnu og fyrir góða skýrslu sem ég get tekið undir.
Mig langar að impra á því, af því að umræðan hefur aðeins farið að snúast um Grænland að nokkru leyti — og ég get tekið undir með hv. þm. Pawel Bartoszek að það er fínt að efla tengslin við Evrópu — að ég held að við þurfum að passa okkur á því að samskipti Grænlands við Bandaríkin eru mikilvæg og ég held að það sé mikilvægt að við tökum á engan hátt tækifærið af Grænlendingum til þess að nýta, ef svo má segja, þá athygli sem Grænland er að fá. Við þurfum að feta þann veg og setja í forgang að Grænland stýri ferðinni og við styðjum Grænlendinga, hvort sem það er í átt til Evrópu eða Bandaríkjanna eða hver sem vilji þeirra er. Að öðru leyti vil ég bara þakka aftur fyrir þessa fínu umræðu.