157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

Alþjóðaþingmannasambandið 2025.

410. mál
[14:31]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur kærlega fyrir hennar ræðu og flutning hennar á skýrslu Íslandsdeildar IPU. Það er kannski tvennt sem mig langar að spyrja um. Ég held að það sé gríðarlega verðmætt fyrir okkur að vera þátttakendur í svona starfi þar sem þingmenn koma frá svona fjölbreyttum svæðum. Þetta er kannski aðeins öðruvísi upplifun heldur en í Norðurlandaráði þar sem við erum öll með svipaðan bakgrunn, bæði hvað varðar skoðanir og annað, en þarna er sannarlega allur heimurinn kominn saman.

Þess vegna langar mig að vita, af því að þar sem ég hef komið að undanförnu og tekið þátt í alþjóðlegum ráðstefnum með þingmönnum, þá er kannski ákveðið „trend“, ef svo má segja, þar að það er meiri áhersla, í Evrópu alla vega, á varnar- og öryggismál og minni áhersla á jafnréttismál í víðum skilningi, þ.e. ályktanir sem innihalda einhvers konar „kynjað orðalag“ eru mildaðar, ef svo má að orði komast. Það er almennt „trend“ í þá veru. Mér finnst, þar sem ég hef komið, stundum minni áhersla vera lögð á þessi mál, sem og loftslagsmál, og meiri áhersla lögð á hernað og varnir.

Mig langaði að spyrja þingmanninn hvort hún sé að verða vör við, í störfum Alþjóðaþingmannasambandsins, einhverja svipaða tilhneigingu. Það er mín fyrsta spurning. Önnur spurning mín snýr að því hvaða möguleika á samstarfi hún sér fyrir sér. Hún nefnir að við eigum auðvitað í mjög góðu og langtímasamstarfi við Norðurlöndin. En þegar litið er til hins stóra heims, eru einhverjir staðir utan Evrópu þar sem hún hefur fundið góðan samhljóm með einhverjum þingmönnum sem hún sér fram á möguleika að starfa með? Því að í nokkuð mörgum tilfellum eru þetta einu skiptin sem íslenskir þingmenn og þingmenn tiltekins lands hittast á alþjóðlegri ráðstefnu.