Alþjóðaþingmannasambandið 2025.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir andsvarið og mjög góðar spurningar. Mig langar að byrja á að segja að ég tek heils hugar undir mikilvægi þess að Ísland taki þátt í starfi sem þessu. Heimurinn er stór og mjög fjölbreyttur og það má viðurkenna hér að það er hollt, held ég, hverjum þeim sem býr í samfélagi eins og okkar að vera minntur á ástand heimsins, ef svo má segja. Það sem er mjög áhugavert og ég tel mjög dýrmætt við starfsemi IPU er þessi gamla, góða diplómatíska hugsun sem er þar í forgrunni sem er einfaldlega sú að ef það eru einhver tengsl á milli, ef það er einhvers konar samtal á milli, þá er það betra heldur en útskúfun því að þá erum við búin að missa samtalið sem getur mögulega orðið til góðs. Þannig að á vegum IPU er t.d. Rússland enn þá. Að mínu viti myndi það seint gerast að ríki yrðu útilokuð frá því samtali sem snýst í grunninn um það að eiga þetta samtal.
Að því sögðu þá skiptir máli að við reynum að gera það sem við getum í því forréttindasamfélagi sem við lifum með okkar mannréttindi og jafnrétti eins öflug og raun ber vitni, að reyna að koma þeim skilaboðum áleiðis. En auðvitað verður maður var við að það sem við — og þetta er lagskipt: Annars vegar erum við með þetta norræna samstarf og svo erum við líka með samstarf líkt þenkjandi ríkja, má segja, þar sem t.d. Kanada og Ástralía og öll Evrópa eru með, sem funda líka saman áður en ályktanirnar koma fyrir atkvæði o.s.frv. Þannig að það er reynt að standa saman að því að koma þeim skrefum áleiðis. En svo það sé sagt: Við verðum alla jafna mjög oft undir í þeirri atkvæðagreiðslu.