Alþjóðaþingmannasambandið 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Það er mjög fróðlegt að vita þetta. Þetta er þá kannski, ef ég skil rétt — af því að mér finnst líka fróðlegt að tala um pólitíkina hérna inni, hvernig hún virkar hér innan húss. Það er t.d. þannig á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að í grunninn má segja að það sé einmitt oftast um að ræða tvo flokka; annars vegar „Vesturlönd“ í stórum skilningi og síðan hitt hnattræna suður, sem er þá hitt aflið og það vinnur nánast allar atkvæðagreiðslur sem þar eru. Þannig að ég velti fyrir mér, í ljósi þess sem þingmaður sagði, hvort það séu kannski svipaðir flokkadrættir sem um ræðir í IPU.
Í annan stað þá langar mig að spyrja aftur, af því að ég heyrði hérna ályktun sem varðaði hvatningu um það að kona yrði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvort það sé þá ekki þannig, eins og ég hef skynjað víða, að jafnréttismál séu aðeins sett á neðri stall nú um stundir, eða hver hennar tilfinning sé varðandi þróun í þessum málum á vettvangi Alþjóðaþingmannasambandsins.