157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

Alþjóðaþingmannasambandið 2025.

410. mál
[14:37]
Horfa

Frsm. ÍAÞ (Hildur Sverrisdóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinni spurningu og ég tek hjartanlega undir með honum um að pólitíkin er mjög áhugaverð, vissulega. Mér er mjög minnisstætt þegar við höfum reynt að koma okkur saman um eina sameiginlega ályktun á undanförnum árum. Þá þarftu tvo þriðju atkvæða til að fá hana samþykkta. Undanfarin ár, vegna deilu Ísraela og Palestínumanna, hefur það einfaldlega ekki tekist þrátt fyrir mikinn vilja, þrátt fyrir að reyna að milda orðalag og reyna að hafa breiða skírskotun til þess að reyna að ná sem flestum með. Það myndi skipta máli ef það kæmi ein ályktun frá þessu þingi og lengi vel tókst það ekki. Sem dæmi má nefna að auðvitað sitjum við oft hvumsa þegar verið er að reyna að setja á dagskrá t.d. að á næsta þingi verði einn hliðarviðburður sem fjallar um réttindi samkynhneigðra. Það er ekki einungis fellt, það er kolfellt. Það er auðvitað eitthvað sem við erum alveg meðvituð um.

Við reynum eins og við getum að ræða við önnur ríki, aðrar álfur, aðra menningarheima. Mér er mjög minnisstætt þegar það varð talsverð umræða um Úkraínu, að sjálfsögðu, enda kannski aðeins annars eðlis heldur en önnur átök, finnst okkur, að þingmaður frá einu Afríkuríkinu stóð upp og sagði: Við erum alltaf að tala um Úkraínu, við erum alltaf að tala um Evrópu og við erum alltaf að tala um Ísrael en við tölum aldrei um Afríku.

Þetta er allt saman mjög áhugavert og mikil lexía fyrir okkur og við reynum auðvitað að stuðla að því sem er jákvætt, sem við höfum gert. Og talandi um jafnréttismálin þá er byggt inn í allt kerfi IPU að t.d. ríki megi ríki ekki greiða atkvæði af fullum þunga nema að hafa bæði kynin í þingmannahópnum. Þetta skiptir máli. Þannig að IPU hefur sjálft á sínum snærum framkvæmdastjóra af báðum kynjum þannig að IPU, í strúktúrnum, stuðlar að jafnrétti með þeim hætti. En auðvitað vitum við að mörg ríki innan sambandsins eiga langt í land að komast í jafn góða stöðu og við t.d.