157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

Evrópuráðsþingið 2025.

397. mál
[15:03]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka ræðuna og þetta samtal sem átti sér hér stað. Ég hjó eftir því að það var sérstaklega rætt um Istanbúl-samninginn og hv. þingmaður kom aðeins inn á þá stöðu sem uppi er eftir að Lettar afgreiddu frumvarp í þinginu hjá sér um að segja sig frá þessum sáttmála sem forseti hefur svo vísað aftur til þingsins og mér skilst á þingmönnum að verði ekki tekið aftur fyrir fyrr en á næsta þingi eða næsta kjörtímabili. Hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir kom ágætlega inn á það í andsvari hver afstaða Norðurlandaráðs hefur verið og mig langaði, virðulegur forseti, aðeins að koma hérna upp og ljá máls á þessu því ég held að það sé svo mikilvægt að við náum saman um grundvallarmannréttindi.

Nú var ég send sem fulltrúi frá Norðurlandaráði á fund Eystrasaltsráðsins í Riga og notaði tækifærið í ræðu minni til að fara einmitt yfir þetta mál og afstöðu Norðurlandaráðs en ég fékk líka tækifæri til að spyrja, þegar utanríkisráðherrar þjóðanna sátu fyrir svörum, hver þeirra afstaða væri, hvernig þau svöruðu því til gagnvart okkur sem erum nánir samstarfsmenn þeirra þegar svona ákvörðun væri tekin í þinginu. Utanríkisráðherra Lettlands sagði bara skýrt að þetta væri ekki á dagskrá hjá ríkisstjórninni sem hún svarar fyrir sem ráðherra af því að þetta var þingmannamál og náði þarna í gegn og það var minni hluti þingmanna sem náði þessu í gegn með stuðningi frá einhverjum í meiri hlutanum. Svo þegar ég fór að reyna að grafast fyrir um raunverulega hverju sætti þá er auðvitað að mínu viti búið að toga og teygja svolítið orð og setningar í þessum sáttmála. Mér líður alla vega þannig, virðulegur forseti, það er erfitt að alhæfa í svona málum, að þarna hafi ákveðið orðræðustríð náð yfirhöndinni. Þarna hefur einhvern veginn svona áróður, sem ég ætla t.d. að kenna við Rússland, en eru kannski fleiri sem hafa staðið fyrir því — farið að tala um þetta sem eitthvert stríð gegn fjölskyldugildum, hinni hefðbundnu fjölskyldu eða eitthvað þess háttar. Þetta sé út af því að hér — nú man ég ekki alveg orðalagið á þessum sáttmála eða þessari grein sem sérstaklega er um rætt út frá einhverri fræðsluskyldu hins opinbera til barna og ungmenna, þá hafi einhverjir sagt: Heyrðu, hérna er einhvers konar trans fræðsla eða trans áróður eða eitthvað slíkt. Þetta er auðvitað rosalega hættulegt. Þess vegna fannst mér mjög áhugavert hverju utanríkisráðherra Eistlands svaraði til í þessari fyrirspurn vegna þess að það er líka svona frumvarp komið fram á eistneska þinginu sem er ekki, að ég best veit, enn komið til afgreiðslu. Hann, sem fulltrúi ríkisstjórnarinnar, sagði eitthvað á þá leið að hann vonaði að þeir sem fyrir þessu stæðu áttuðu sig á hvað þeir væru að gera því að það væri raunverulega verið að leika sér að eldinum.

Ég sagði í ræðu minni: Við stöndum hérna í stríði við Rússland og Úkraínumenn finna auðvitað mest fyrir því þar sem þeir finna fyrir sprengjum og það er ráðist á þá, þeir eru ekki bara drepnir heldur er kynferðisofbeldi notað markvisst sem vopn í þessu stríði og það ná engin orð utan um allan þann hrylling. Svo var rætt líka um börnin sem er stolið. En þegar einhverjir sem við lítum á sem okkar bandamenn — nú eru Eystrasaltsríkin alveg svolítið fjarlæg okkur, þau eru ekkert næstu nágrannar, þau eru ekki eins og Grænland eða Færeyjar, ekki heldur eins og Noregur eða hin Norðurlöndin, þau eru aðeins fjær. En af hverju vinnum við svona mikið saman og þétt? Það er vegna þess að við deilum einhverjum grunngildum. Þess vegna var ég að reyna að fá frá þeim: Bíddu, hvernig ætlið þið að útskýra það fyrir mér, hægri þingkonu uppi á Íslandi, sem hefur stutt ykkur og finnst mikilvægt að við stöndum saman í þessari baráttu, að þið ætlið að segja ykkur frá einhverjum alþjóðasáttmála eins og þessum? Ég fékk auðvitað engin svör við þeirri spurningu en það sem ég fékk eftir ræðu mína voru margir sem voru mjög ósáttir við það að þetta hafi farið í gegnum þingið hjá þeim eða væri að birtast á þinginu og þau óskuðu eftir stuðningi og það er nú kannski ástæðan fyrir því að ég kom hingað upp, virðulegur forseti, með aðeins of löngum inngangi að því, ég fékk mjög skýra beiðni frá þessum aðilum og þeir sögðu: Viljið þið vinsamlegast tala, viljið þið tala með þessum hætti. Viljið þið láta okkar þingmenn og okkar fólk vita það að þetta skiptir ykkur máli til að geta staðið með okkur. Það voru eiginlega skilaboðin mín hérna og þar hefur okkur Íslendingum svo oft farnast vel, þó að við séum lítil og fámenn og herlaus og eitthvað, þegar það snýr að því að við getum hreinlega talað tæpitungulaust, sagt hvað okkur finnst og það skiptir máli.