157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

NATO-þingið 2025.

405. mál
[15:34]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka forseta fyrir að víkja frá meginreglum þeirra starfsreglna sem við viðhöfum hér í þingsal en í ljósi umræðunnar tel ég nauðsynlegt að koma hér aðeins upp undir góðri ræðu og þakka formanni Íslandsdeildar NATO-þingsins kærlega fyrir yfirferðina og góða frásögn af starfi nefndarinnar, sem ég held að sé í mjög góðum höndum. Ég hef kynnt mér frásagnir af fundum deildarinnar og held að hér séum við með vel skipaða sveit fyrir Íslands hönd. Ég má hins vegar til með að spyrja hv. þm. Dag B. Eggertsson ögn um þær áherslur sem við höfum viðhaft til lengdar í tengslum við varanlegan frið og aðkomu kvenna að því að koma á og viðhalda friði. Hér er ég að vísa í ályktun Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi. Þetta er mikilvægur liður í því að viðhalda ábyrgri öryggisstefnu og friðargæslu og koma á varanlegum friði vegna þess að það hefur sýnt sig og sannað að þegar konur eru ekki aðeins áhorfendur heldur beinir þátttakendur í slíkum viðræðum eru meiri líkur á því að friður haldist. Við vitum hins vegar líka, og það er ekkert í einhverju tómarúmi sem ég spyr um þetta, að það er ágjöf hvað varðar áherslur að þessu leyti á alþjóðavettvangi og NATO er því miður ekki þar nein undantekning. Ég spyr hvort Íslandsdeildin hafi léð máls á þessum málaflokki sérstaklega í sínum störfum og þá með hvaða hætti.