NATO-þingið 2025.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég tek undir það að þetta eru ekki sömu tímarnir og kannski áður og við þurfum ekki að rekja það. Ég get sagt að þegar framkvæmdastjóri NATO kom hér og heimsótti þingið í haust þá léði ég máls á þessu og fékk auðvitað diplómatískt svar til baka. Hann er auðvitað í vandasamri stöðu og þarf að gæta að ýmsum álitaefnum sem við vitum hver eru og þurfum heldur ekki rakið frekar hér í dag. En þar höfum við tækifæri, við höfum tækifæri til að stilla saman okkar strengi á öllum þeim vettvangi þar sem við sinnum alþjóðastarfi og það má gera með skipulögðum hætti og ég fagna því að Norðurlöndin séu að gera sig gildandi í þessu á vettvangi NATO-þingsins. Það erum við svo sannarlega að reyna að gera í Norðurlandaráði þar sem ég fer fyrir. Hér eigum við mikil tækifæri í norrænu samstarfi og þing allra norrænu þjóðþinganna ganga skipulega til verks í þessu og ég vona að það sé vilji fulltrúa Íslandsdeildar NATO-þingsins (Forseti hringir.) að taka þátt í því að koma Íslandi betur inn í það samstarf.