ððNATO-þingið 2025.
Virðulegur forseti. Það er bara gaman að segja frá því og ekkert launungarmál að þeir bandarísku þingmenn sem sækja NATO-þingið eru miklir talsmenn NATO og þessa samstarfs. Þó ber að geta þess að Bandaríkjaþing á seturétt fyrir eina 36 þingmenn og ég held að ég fari rétt með þegar ég segi að þeir hafi aldrei verið mikið fleiri en tíu sem sækja þingið. Hvort það á sér einhverjar pólitískar skýringar er ég þó ekki viss um vegna þess að á Bandaríkjaþingi eru þingmenn ekki með varaþingmenn, sem er ástæðan fyrir því að þessir fundir eru meira og minna haldnir um helgar eins og hægt er. Og sérstaklega eins og í fjárlagakrísunni sem var á Bandaríkjaþingi var þeim beinlínis óheimilt að ferðast.
Ég held að tungutakinu megi hins vegar lýsa sem varfærnu. Ég hef átt þess kost í tengslum við þessa fundi að eiga líka tvíhliða fundi með bandarískum þingmönnum, m.a. Lisu Murkowski, öldungadeildarþingmanni frá Alaska, í tengslum við Transatlantic Forum sem var núna í desember. Ég held að í sumu, það getur varðað Úkraínu, það getur varðað einstakar aðgerðir eins og í Venesúela, hafi ekki verið fylgt þeirri alla vega hefð, sumir segja lögum, að leita samþykkis þjóðþingsins. Þannig að þingmenn eru líka aðeins varir um sig og settu inn í fjárlög, ef ég kann það rétt, beinlínis að óheimilt væri að segja Bandaríkin úr NATO nema með samþykki þingsins, en það hafði ekki verið skýrt í lögum áður. Þannig að það er svona beggja blands. En mér fannst, eins og þingmanninum, mikilvægt (Forseti hringir.) að formaður bandarísku landsdeildarinnar væri með á þessari ályktun um að virða sjálfstæði og fullveldi Grænlands.